Miðvikudagur, 15. september 2021
Múslímavæðing, nei takk
Ríkisstjórnin, með Framsóknarflokkinn í fararbroddi, hyggst stórfjölga múslímum hér á landi.
Það er misráðið. Ekki vegna þess að múslímar séu vont fólk, þeir eru sem slíkir hvorki betri né verri en aðrir. Múslímatrú er vandamálið. Hún aðlagast ekki vestrænni menningu. Lifandi í orðræðu múslíma eru hugtökin ,,trúaður" og ,,vantrúaður". Þetta er miðaldagóss sem vesturlönd afþökkuðu með upplýsingunni og frönsku byltingunni.
Vestræn menning gerir ráð fyrir jafnrétti kynjanna og aðskilnaði trúar og ríkisvalds. Múslímar fallast á hvorugt. Samkvæmt þeirra trú er konan undirsett karlmanninum. Samkvæmt múslímum er trúin ekki einkamál hvers og eins heldur skal trúin móta samfélagið.
Múslímar koma til Íslands sem safnaðarfólk en ekki einstaklingar. Óhugsandi er að í viðtali við Pólverja eða Litháa kæmi fram sjónarmið eins og ,,ef við vinnum í samvinnu við yfirvöld og hjálpum aðfluttum að aðlagast samfélaginu þá munum við ná árangri." En þetta segir talsmaður múslíma blákalt. Múslímar eru börn spámannsins, ekki frjálsir einstaklingar.
Múslímar eru trúarsöfnuður sem á ekki heima á Íslandi. Þeir sem annað halda eru annað tveggja grunnhyggnir eða illviljaðir.
Múslimar koma til Íslands til þess að búa við frið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég myndi frekar mæla með svona KRISTNUM GUÐSPEKIFÉLÖGUM eins og hér er sýnt:
www.vetrarbrautin.com
------------------------------------------------------------------------------
Við getum eflaust öll verið sammála um að allt sem að tengist múslimatrúnni
sé skref afturábak í mannlegri þróun.
Jón Þórhallsson, 15.9.2021 kl. 08:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.