Fimmtudagur, 9. september 2021
Bylting: hálfur dagur af CO2 fangaður á ári
Eldgosið í Fagradalsfjalli losar um 10 til 11 þúsund tonn af koltvísýringi, CO2, á dag, segir Jarðvísindastofnun.
Fyrsta og stærsta heildstæða lofthreinsi- og förgunarstöðin í heiminum við Hellisheiðarvirkjun fangar 4 þúsund tonn af CO2 á ári.
Jú, þið lásuð rétt. Minna en hálfsdags framleiðsla litlu eldsumbrotanna í Fagradalsfjalli fer ofan í holu á Hellisheiði Á EINU ÁRI.
Þetta er ,,byltingarkennt skref í loftslagsmálum" segja talsmenn fyrirtækisins. Íslendingar geta loksins, loksins ,,dregið úr loftslagsmengun hér á Íslandi."
Næsta framlag Íslendinga til loftslagsmála er að loka gömlu fjósi í afdölum sem hýsir tvær kýr. Þegar þær hætta að leysa vind mun stórlega draga úr loftslagsvá heimsbyggðarinnar. Spyrjið bara Grétu Thunberg og Sameinuðu þjóðirnar.
Orca hefur starfsemi á Hellisheiði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það þarf ekki að fara út fyrir landsteinana
Sigmundur Ernir skrifar i Fréttablaðið í dag að Íslendingar séu mestu umhverfissóðar í veröldinni
Grímur Kjartansson, 9.9.2021 kl. 08:18
Vitleysan ríður ekki við einteyming áþessu landi
Halldór Jónsson, 9.9.2021 kl. 08:31
Það er ekki frátt að ESB málgagnið reyni að vinna fullveldi landsins það ógagn mse það má. Lesið bara skrif Þorsteins Pálssonar í sama snepil.
Halldór Jónsson, 9.9.2021 kl. 08:32
Svo gleymist að Katla losar 28.000 tonn af CO2 á sólarhring alla daga án þess að gjósa. Það yrði laglegt ef hún svo gysi?
Halldór Jónsson, 9.9.2021 kl. 13:42
Þetta er ,,byltingarkennt skref í loftslagsmálum" segja talsmenn fyrirtækisins. Íslendingar geta loksins, loksins ,,dregið úr loftslagsmengun hér á Íslandi."
Halldór Jónsson, 9.9.2021 kl. 13:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.