Sunnudagur, 22. ágúst 2021
Tölfræði gróðurhúsakenninga hrynur
Í meira en 20 ár notar loftslagsnefnd Sameinuðu þjóðanna, IPCC, gallaða tölfræðigreiningu á rannsóknir um áhrif gróðurhúsalofttegunda á hlýnun jarðar.
Tölfræðigreiningin, kölluð AT99, eftir höfundum og ártali, er notuð til að sannprófa áhrif gróðurhúsaloftegunda á hitastig jarðar.
Ross McKitrick sýnir fram á að AT99-greiningin er gölluð tölfræði. McKitrick birtir niðurstöðu sína í ritrýndu vísindatímariti en hefur fengið umfjöllun víðar, sjá hér og hér.
Gróðurhúsakenningin og framleiðsla mannsins á koltvísýringi, CO2, er kjarni loftslagsumræðunnar. Þegar tölfræðin að baki reynist gölluð í grundvallaratriðum er kenningin ósönnuð - henni verður að hafna.
En, auðvitað, við sem höfum nennt að fylgjast með umræðunni vitum ósköp vel að hún snýst ekki um að skilja náttúruna með vísindum heldur nota vísindin í pólitískum tilgangi. Ronan Connolly tekur saman ferlið hvernig pólitík tók lofslagsvísindi í gíslingu.
Athugasemdir
Gleypniróf vatnsgufu (H₂O) og kolsýru (koldíoxíða CO₂) eru sambærileg. Málið er að vatnsgufan er ca 4% af andrúmsloftinu en kolsýran er 0,04% Ég hef ekki fengið skýringu á því hvers vegna kolsýran skiptir svona miklu máli. Við þetta má bæta að jörðin er á sögulegu köldu tímabili og þarf engan að undra að það sé að hlýna. https://drive.google.com/file/d/18PgFd4LL1m5a5lzAsB-G5pouTdLpZqrF/view
Kristinn Sigurjónsson, 22.8.2021 kl. 23:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.