Mánudagur, 19. júlí 2021
Heilbrigðir og sjúkir, Gates og Soros
Auðjöfrarnir Bill Gates og George Soros kaupa ásamt öðrum breskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun og framleiðslu á hraðprófum fyrir sjúkdóma eins og COVID-19. Fréttin er úr Telegraph sem þykir þokkalega áreiðanleg fréttaveita.
Menn eins og Gates og Soros eru þekktir fyrir að horfa til framtíðar í fjárfestingum sínum. Kaupin á breska fyrirtækinu má hafa til marks um að félagarnir meti stöðu mála þannig að eftirspurn verði til frambúðar á hraðprófi vegna smitsjúkdóma eins og COVID-19.
Nú þegar eru gefnar út í Bandaríkjunum og Evrópu ýmsar útgáfur af bólusetningarvottorðum, n.k. heilsufarsvegabréf. Handhafar slíkra vegabréfa eru frjálsari ferða sinna innanlands og utan en þeir sem eru án vegabréfanna.
Almenningur á vesturlöndum í það stóra og heila virðist fylgjandi stórauknu eftirliti hins opinbera á heilsufari og sættir sig jafnframt við margvíslegar hömlur á daglegu lífi sbr. skyldu til að bera andlitsgrímu, skerðing á atvinnu- og ferðafrelsi o.s. frv.
Farsóttir á borð við þá sem Kínaveiran veldur ganga að jafnaði yfir á tveim til fjórum árum. Teikn eru ótvíræð um að heimurinn breytist varanlega með þessari farsótt og fari ekki í sama farveg og fyrir kóf. Gates og Soros eru framsýnir fjárfestar.
Einkennin ýmist væg eða engin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Menn eins og Gates og Soroos eru ekki framsýnir fjárfestar, þeir eru meira í að búa til vandamálið og tryggja að það sé eftirspurn eftir því sem þeir kaupa og gera!
Halldór Björgvin Jóhannsson, 19.7.2021 kl. 12:54
Nákvæmlega.
Kristinn Bjarnason, 19.7.2021 kl. 14:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.