Föstudagur, 16. júlí 2021
9 flokka óreiða í haust?
Með 9 þingflokka á alþingi blasir við pólitísk óreiða. Veik ríkisstjórn með annað tveggja tæpan meirihluta eða 4 til 5 flokka innanborðs er ávísun á upplausn.
Verkefnið næstu vikur er að sannfæra almenning að vanþrif eru af fjölda smáflokka á alþingi.
En fari svo að þjóðin kýs yfir sig 9 þingflokka alþingi er hætt við að næsta kjörtímabil verði stutt.
Stjórnarmyndun ákaflega erfið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Óreiðan er fyrir en eykst verulega. Verður kannski ný sería af Prúðuleikurunum í haust ?
Örn Gunnlaugsson, 16.7.2021 kl. 10:06
Ertu ekki sammála mér í því að nýta tækifærið tengt nýrri stjórnarskrá
og taka upp FORSETA-ÞINGRÆÐI hér á landi
(eins og er í frakklandi)
þannig að FORSETI ÍSLANDS þyrfti þá sjálfur að axla raunverulega ábyrgð
á sinni þjóð með því að hann þyrfti sjálfur
að leggja af stað með stefnurnar í öllum stóru málunum
og standa eða að falla með þeim á kjördag?
Þó að það þyrfti að kjósa slíkan FORSETA í tveimur kosningaumferðum þannig að viðkomandi hefði allavega 51% kosningamannabærra manna á bak við sig;
að þá gæti slíkt verið skárri kostur
en sú flokka-flækja sem að þú ert að kvarta yfir.
Jón Þórhallsson, 16.7.2021 kl. 10:14
Eðlilegt ástand er að þjóðin flykkist um þann leiðtoga sem að ætti að hafa
BESTU STEFNUNA INN Í FRAMTÍÐINA
Í mínum augum ætti sá leiðtogi að vera FORSETI ÍSLANDS.
Jón Þórhallsson, 16.7.2021 kl. 10:35
Hver er höfundur eiginlega kominn í hugsunum sínum ?
"[...] Verkefnið næstu vikur er að sannfæra almenning að vanþrif eru af fjölda smáflokka á alþingi". Má þá ekki útfæra þetta þannig að það megi sannfæra alla landsmenn um að hlusta á eina útvarpsrás ? Lesa einn miðil, borða einn rétt og allir að drekka léttmjók ?
Hvar vill höfundur draga mörkin í lýðræðislegri þróun ?
Heyr á endemi.
Höfundur ætti kannski að kanna hvað veldur því að fleiri vilja tjá sig um málefni og aðgerðir, þar sem ekki er pláss fyrir það í gamla fjórflokknum.
Höfundur og kórfélagar hans mega svo auðvitað berja hausnum í stein og halda að það hafi verið allt betra í "gamla daga".
Sigfús Ómar Höskuldsson, 16.7.2021 kl. 10:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.