Mánudagur, 26. apríl 2021
Lilja og RÚV: tjáningarfrelsið er aðeins fyrir ríkisfjölmiðla
Lilja menntamálaráðherra segir Samherja hafa gengið of langt þegar fyrirtækið gerði myndbönd til birtingar á samfélagsmiðlum um sína hlið á RÚV-áróðrinum gegn norðlensku útgerðinni.
Fjölmiðlapólitísk vændiskaup teljast siðleg í ranni Samfylkingar. Þingmaður Samfylkingar stillti Lilju upp við vegg eftir herútboð RÚV um helgina.
Menntamálaráðherra hefði mátt standa betur í ístaðinu og varið hornstein mannréttinda sem er tjáningarfrelsið. Myndbönd Samherja á You-Tube eru hóflegt andsvar við raðfréttum RÚV þar sem beint og óbeint er sagt að glæpamenn stjórni Samherja.
RÚV smjattar á orðum Lilju og segir:
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, telur Samherja ganga of langt í viðbrögðum sínum við fréttaflutningi Ríkisútvarpsins. Mikilvægt sé að fjölmiðlar séu frjálsir og geti fjallað um málefni líðandi stundar.
Með leyfi að spyrja: minnkar frelsi RÚV ef Samherji gerir myndband á You-Tube?
Í meðförum Lilju og RÚV er tjáningarfrelsið aðeins fyrir ríkisrekna fjölmiðla.
Lilja segir Samherja ganga of langt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ekki hélt ég að hún væri svona vitlaus.
Ragnhildur Kolka, 26.4.2021 kl. 23:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.