3 RÚV-fréttamenn sitja um Áslaugu Örnu

Síðustu 4 daga hafa þrír fréttamenn RÚV séð um að halda lífi í símtals-máli Áslaugar Örnu dómsmálaráðherra. Vaninn er sá að fréttamenn RÚV ganga að einhverju marki sjálfala og eru með ,,sín mál" en í þessu tilfelli unnið eftir miðstýrðri aðgerðaáætlun með tilheyrandi verkskiptingu.

RÚV-arinn Ingvar Þór Björnsson var með símtalsfrétt á föstudag. Í dag skiptu með sér vaktinni fréttamennirnir Hildur Margrét Jóhannsdóttir og Anna Lilja Þórisdóttir, hvor með sína símtalsfréttina.

Raðfréttir RÚV þjóna því markmiði að telja almenningi trú um að hér sé stórt og alvarlegt mál á ferðinni. Oft og einatt er stofnað til raðfrétta í pólitískum tilgangi og fréttaefninu haldið lifandi í samvinnu pólitísk öfl - þingnefnd í þessu tilviki. Úlfaldi er gerður úr mýflugu og látinn suða í hlustum áheyrenda. Í krafti stöðu sinnar á fjölmiðlamarkaði getur RÚV ráðist í aðgerðir af þessu tagi.

Einhver á fréttastofunni á Efstaleiti sér um að samræma aðgerðir gegn dómsmálaráðherra. Hvaðan skyldi viðkomandi hafa umboð sitt?


mbl.is „Eðlilegra að fá embættismann í verkið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigfús Ómar Höskuldsson

Við hin hljótum samt að fagna aðalatriðinu hér, sem er að höfundur er allavega að fá talsvert fyrir sinn 1456 kr sem hann og við hin greiðum til RÚV á mánuði fyrir góða dagskrá og fínar fréttir.

Ef ekki væri fyrir faglegan fréttaflutning RÚV og flotta dagskrá, þá væri bloggsíða höfund hvorki fugl né fiskur.

Fyrir það hlýtur kórinn hjá höfundi að fagna mjög....

Sigfús Ómar Höskuldsson, 1.3.2021 kl. 23:20

2 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Útvarpsgjaldið er reyndar 1525 kr á mánuði eða 18300 kr á ári, fyrir hvern skattgreiðanda, Sigfús. Það segir að hjón borga 3050 kr á mánuði til ruv, eða 36600 kr á ári. Því miður er ekki hægt að finna nýrri tölur um fjölda skattgreiðenda vs fjölda heimila í landinu, en frá 2019. Samkvæmt þeim tölum er gjald á hvert heimili nokkuð hærra, eða rúmar 45000 kr á heimili á ári. Hvort fólki þykir það hátt eða ekki fer auðvitað eftir því hversu bólgin eða tóm budda hvers er, en vandinn er að ekki er möguleiki að komast hjá því að greiða þann skatt, hvort sem maður nýtir sér þjónustuna eða ekki.

Mat á faglegheitum fréttstofu ruv fer auðvitað eftir því hvar hver hugur manna í pólitík er. Það á auðvitað ekki að vera svo, fréttastofan á að vera allra, ekki bar þeirra sem hafa ákveðna skoðun í pólitík.

Gunnar Heiðarsson, 2.3.2021 kl. 09:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband