Talsmenn glæpahópa á alþingi

Um leið og lögreglan fær styrk til að verja landið ásókn erlendra glæpagengja þarf almenningur að hafa auga með talsmönnum glæpahópa á alþingi.

Málpípur glæpavæðingar kynna sig ekki sem slíka. Þeir fara fjallabaksleið, tortryggja störf lögreglunnar annars vegar og hins vegar krefjast opinna landamæra til að misindismenn geti vaðið inn í landið á skítugum skónum.

Það stendur upp á alþingi að samþykkja lög með ótvíræðri heimild yfirvalda að vísa úr landi útlendingum sem setjast hér að til að stunda glæpi. Hvers vegna skyldi það ekki hafa verið gert?


mbl.is Skera upp herör gegn glæpahópum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grímur Kjartansson

Skipulögð glæpastarfsemi er líka hjá ýmsum fyrirtækjum sem fá endurgreiddan virðisaukaskattinn af sömu vörunni margoft. Þetta hefur komið upp á Íslandi og höfuðpaurinn náðist aldrei frekar en í Svíþjóð

SVT avslöjar: Bolag i mobilhärvan kan kopplas till organiserad brottslighet | SVT Nyheter

Grímur Kjartansson, 26.2.2021 kl. 11:15

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Akkuru eru rassálfar að pukrast á Alþingi íslendinga? Kjósum aðra í þeirra stað.

Helga Kristjánsdóttir, 27.2.2021 kl. 02:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband