Föstudagur, 25. desember 2020
Trúarlíf í kófinu, guð og mannasetningar
Sumum er sáluhjálp að ganga til kirkju. Ekki síst á fæðingardegi frelsarans. Þrátt fyrir mannasetningar, lög og reglur, um að í kófi skuli gæta sóttvarna er vel skiljanlegt að fólk sæki messu á aðfangadag jóla og hugsi minna um kjötheima en þess meira um eilífðina.
Í kjötheimi ræður RÚV ríkjum. Trútt sinni köllun, sem er andstyggð á öllu sæmilegu, hlýtur Efstaleiti að skipuleggja ofsóknir á hendur þeim kirkjuræknu.
Landsmenn bíða með óþreyju eftir raðfréttum pólitíska rétttrúnaðarins um þá samfélagslegu ógn er stafar af trúuðum kristnum á aðfangadegi jóla.
Lögreglan taldi 120-130 manns í kirkju | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Húmanisminn heldur að hann sé Guð og hafi vald yfir kirkjuhaldi. Svo er ekki.
Guðjón E. Hreinberg, 25.12.2020 kl. 12:24
Ef þessi kirkja hefði verið í Garðabæ þá þyrfti ekki að bíða eftir RUV
en RUV er í vanda þar sem ekki má minnast á uppruna þessara kirkjugesta í fréttaumfjöllun
Grímur Kjartansson, 25.12.2020 kl. 12:38
Hvað í ósköpunum hefur frétt um þessa 100+ fáraðlinga í kirkjunni sem og ditto í fyrra pistli þínum um Bjarna Ben að gera með RUV?
Flestir fjölmiðlar nær og fjær hafa birt fréttir af þessum 2 viðburðum en þú bloggar bara um RUV eins og þetta sé eitthvað einkamál á þeirra könnu.
Farðu nú að hætta að titla þig sem blaðamann, þú ert engin slíkur heldur bara bloggari....og þesskonar sem hefur bara einhliða skoðun á mönnum og málefnum og kominn langt frá venjulegri blaðamennsku.
Ívar Ottósson, 25.12.2020 kl. 14:20
Fyrstu upplýsingar um málið komu frá lögreglunni. Ekki RÚV.
Upplýsingar um hvaða kirkju var að ræða voru svo staðfestar af biskupi hennar í samtali við mbl.is. Ekki RÚV.
Guðmundur Ásgeirsson, 25.12.2020 kl. 16:46
loka RÚV strax.
Kristinn Bjarnason, 26.12.2020 kl. 11:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.