Mánudagur, 14. desember 2020
Vinstri grænum ekki treystandi fyrir náttúrunni
Náttúran er ekki manngerð, það gerir hana spennandi og eftirsóknarverða. Vinstri grænir, á hinn bóginn, vilja manngera náttúruna og setja reglur hægri vinstri um aðgang að henni.
Í höndum Vinstri grænna eru víðernin tannhjól í gangverki ríkisvaldsins. Náttúran verður álíka spennandi og skattaframtalið.
Þess vegna erum við örlítill-grenjandi-minnihlutinn sem afþökkum forræðishyggju Vinstri grænna.
Hálendisþjóðgarður umdeildur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Í Bandaríkjunum, landi frelsisins, stendur á aðgangskorti gesta í þjóðgörðum "Proud partner", "stoltur þátttakandi." Hjá okkur var hugmyndin um eitthvað svipað hér á landi fyrir sex árum nefnt "auðmýking og niðurlæging."
Ómar Ragnarsson, 14.12.2020 kl. 13:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.