Glæpir, skúrkar og hetjur í lýðræði

Lýðræðislegur dómstóll dæmdi Sókrates til dauða 399 f. Kr.; lýðræði fleytti Hitler til valda 1933; innrásin í Írak 2003 var í nafni lýðræðis.

Lýðræði er engu að síður skásta hugmyndin að stjórnarfyrirkomulagi sem maðurinn hefur látið sér detta í hug. 

Undanfari glæpa lýðræðis er yfirleitt lausung og lygi. Töpuð stríð valda lausung. Dómsmorðið á Sókratesi var framið af Aþeningum rétt eftir tapið gegn Spörtu í Pelópsskagastríðinu; uppgjöf Þjóðverja í fyrra stríði leiddi til Hitler til valda. Sigur í stríði er líka viðsjárverður lýðræðinu. Vesturlönd voru nýbúin að fá sigur í kalda stríðinu þegar þau lögðu upp í hernað í Írak og víðar í miðausturlöndum.

Lausung og lygi tröllríða stjórnmálum vestrænna ríkja um þessar mundir. Bandarísku forsetakosningarnar eru yngsta dæmið. Ekki er hægt að kenna um stríðsátökum í hefðbundnum skilningi.

Stríðið sem skýrir viðsjár samtímans er kennt við menningu. Yfirstandandi menningarstríð snýst um sjálfsmynd hins vestræna manns, hvort hann sé skúrkur eða hetja.

Skúrkaímyndin sem hefur vinninginn sem stendur. Verði það endanleg úrslit hrynur vestræn menning. Það yrði stærsti glæpur lýðræðisins. Jafnframt sá síðasti.

 


mbl.is Obama segir lýðræði eiga undir högg að sækja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Gætir þú ekki verið sammála mér um að FORSETAINGRÆÐI

myndi henta betur hér á landi eins og er í frakklandi

þar sem að forseti landsins mydi axla raunverulega ábyrgð á sinni þjóð.

frekar en að vera með flokkaflækjuna þar sem að allir eru óánægðir?

https://stjornarskra-2019.betraisland.is/post/22597

Jón Þórhallsson, 13.11.2020 kl. 10:27

2 Smámynd: Jón Þórhallsson

Þarna á að standa FORSETAÞINGRÆÐI.

Jón Þórhallsson, 13.11.2020 kl. 10:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband