Þriðjudagur, 27. október 2020
Erdogan: múslímar, förum aftur á steinöld
Tyrkland keppir við Sádí-Arabíu um forystuhlutverk múslíma á alþjóðavettvangi. Tyrkland hótar Frakklandi, og þar með Evrópu, viðskiptaþvingunum vegna deilna um skopmyndir af spámanninum.
Brandarinn er að án vestrænnar tækni, nýsköpunar og þróunar hyrfu múslímaríkin aftur á steinöld. Bílar, flugvélar, ísskápar, tölvur, stafræn fjarskipti yrðu að víkja fyrir hestvagni og landpósti.
Múslímar í milljónavís flýja heimkynni sín til vesturlanda í leit að lífsgæðum sem eru þegar af skornum skammti í ríkjum spámannsins. Erdogan steytir hnefann að hjálpræðinu.
Trúarmenning múslíma fóstrar öfgar og er helst þekkt fyrir að framleiða hryðjuverk. Verði Erdogan og félögum að góðu í viðskiptastríði við vesturlönd.
Erdogan sniðgengur franskar vörur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Er það rökrétt að tyrkland sé með HINUM KRISTNU ÞJÓÐUM Í NATÓ?
Jón Þórhallsson, 27.10.2020 kl. 07:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.