Föstudagur, 11. september 2020
Öfgamúslími krefst hælis á Íslandi
Í frétt Stundarinnar segir um egypskan múslíma sem krefst hælis á Íslandi fyrir sig og fjölskyldu sína:
Hafi hann gegnið úr flokknum og lýst opinberlega yfir stuðningi við Bræðralag múslima.
Bræðralag múslíma eru öfgasamtök sem boða ríki íslams. Í ríki íslam er ekki trúfrelsi, menn eru aflífaðir fyrir að ganga af trúnni; konur eru þrælar karlmanna og kristnir, fái þeir á annað borð að halda lífi, skulu krjúpa fyrir múslímum og borga þeim sérstakan skatt.
Vinstrimenn hér á landi eru áfram um að flytja inn í landið öfgamenn.
En, nei, takk við eigum nóg með innlendar öfgar.
Segja ummæli Áslaugar köld og ónærgætin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það ætti að vera lágmarkskra til allra innflytjenda
að þeir geti sýnt fram á að þeir JÁTI KRISTNA TRÚ í sínu vegabréfi.
Jón Þórhallsson, 11.9.2020 kl. 12:09
Það skiptir engu máli þó hann sé öfgamaður og islamisti, hann er múslimi og það dugar "góða fólkinu"!
Sigurður I B Guðmundsson, 11.9.2020 kl. 15:21
Jón Þórhallsson.
Þessi hugmynd þín samræmist ekki stjórnarskrá.
Svo er trú eða lífsskoðun hvergi skráð í vegabréf.
Guðmundur Ásgeirsson, 11.9.2020 kl. 16:25
Stjórnarskráin kveður á um að ÞAÐ SKULI VERNDA KRISTNA TRÚ.
62. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands segir: „Hin evangelíska lút- erska kirkja skal vera þjóðkirkja á Íslandi, og skal ríkisvaldið að því leyti styðja hana og vernda.
-------------------------------------------------------------------------------------------------
Þó að trú / lífsskoðun sé ekki skráð í vegabréf;
að þá myndi ég vilja taka upp þá reglu ef að ég fengi einhverju ráðið
Jón Þórhallsson, 11.9.2020 kl. 16:34
Jón Þórhallsson.
Stjórnarskráin kveður líka á um trúfrelsi og bann við mismunun á grundvelli trúarbragða meðal annars. Sjá 63. og 65. gr.
Trúarafstaða eða lífsskoðun er einkamál hvers og eins sem kemur ríkisvaldinu ekki við og á því ekkert erindi í vegbréf eða slík plögg.
Guðmundur Ásgeirsson, 11.9.2020 kl. 17:16
63. gr.
[Allir eiga rétt á að stofna trúfélög og iðka trú sína í samræmi við sannfæringu hvers og eins. Þó má ekki kenna eða fremja neitt sem er gagnstætt góðu siðferði eða allsherjarreglu.] 1)
ISLAM gerir allt öfugt og með því á sú trú ekkert erindi hingað til Íslands.
Sigurður Kristján Hjaltested, 11.9.2020 kl. 17:21
Þetta er auðvitað óttaleg della eins og vanalega. Bræðralag múslima í Egyptalandi náði völdum árið 2011 og því fer fjarri að fólk hafi verið aflífað fyrir að ganga af trúnni, kvennakúgun komið á og önnur trúarbrögð ofsótt.
Þorsteinn Siglaugsson, 11.9.2020 kl. 20:33
Þorsteinn ertu að segja að kristnir séu ekki ofsóttur hópur í Egyptalandi?
Guðmundur St Ragnarsson, 12.9.2020 kl. 00:16
Mismunun gagnvart kristnum á sér langa sögu í Egyptalandi og er alls ekki beintengd Bræðralagi múslima.
Þorsteinn Siglaugsson, 12.9.2020 kl. 01:22
Sigurður Kristján Hjaltested.
Trúarbrögð eru ekki lög á Íslandi.
Þess vegna er múslimatrú alveg leyfileg því það má trúa á guð og líta á Allah sem spámann svo lengi sem menn hlýða íslenskum lögum.
Mér er slétt sama þó einhverjir trúi á einhverjar sögur.
Guðmundur Ásgeirsson, 12.9.2020 kl. 02:02
Jahá mismunun á sér stað gagnvart kristnum í Egyptalandi og hefur varað lengi, Þeir eru ofsóttir þar,minnti að J.V.J.heitinn hefði oft nefnt það. Þótt ekki sé stríðsástand í Egyptalandi nú er kristnum hætta búin og ef einhverjir fá hér hæli tel eg þá kristnu eiga forgang.
Helga Kristjánsdóttir, 12.9.2020 kl. 02:06
Íslam er ekki bara trú, það er líka stjórnkerfi. Það fer ekki vel að hafa að hafa tvö stjórnkerfi í sama landinu.
Hrólfur Þ Hraundal, 12.9.2020 kl. 07:12
Guðmundur Ásgeirsson; vil bara benda þér á að Allah er guðinn (og er ekki nafn hans) og Múhhameð var spámaðurinn :Þ
ViceRoy, 12.9.2020 kl. 08:50
https://en.wikipedia.org/wiki/Al-Nour_Party Þetta er flokkurinn sem hann gekk úr til að styðja Bræðralag múslima.
Guðmundur St Ragnarsson, 12.9.2020 kl. 13:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.