Þriðjudagur, 18. ágúst 2020
Trump er lýðræðið
Trump fékk sigur 2016 sakir lýðhylli. Bandaríkjamenn kusu mann til að stokka upp valdakerfið í Washington.
Mótframbjóðandi Trump í nóvember er Joe Biden, sem geymdur er í kjallara enda er hann elliær; sagði við þeldökkan viðmælanda að blökkumenn væru ekki þeldökkir nema þeir kysu Demókrata.
Ef Bandaríkin taka Biden fram yfir Trump er lýðræðið komið ofan í kjallara. Kannski best geymt þar.
Donald Trump er rangur forseti fyrir land okkar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Myndir þú "meika" þig í Trumpóníu, Páll Vilhjálmsson? Ég efa það.
FORNLEIFUR, 18.8.2020 kl. 09:33
Sæll Páll.
Ekki er það nú alveg rétt að Trump hafi fengið sigur sökum lýðhylli.
"Clinton had nonetheless received almost three million more votes (65,853,514 - 62,984,828 = 2,868,686) in the general election than Trump, giving Clinton a popular vote lead of 2.1% over Trump"
Réttara væri að segja að kjósendur Trumps hafi viljað hrista upp í stjórnkerfinu eða lýðræðinu. Nú fer þessari tilraun að ljúka og nokkuð ljóst að meirihluti bandaríkjamanna vilja þegar á reynir forseta sem ekki er haldinn alvarlegri persónuleikaröskun sem á ensku nefnist: "Narcissistic Personality Disorder". Staðreyndin er sú að Trump uppfyllir öll sjúkdómseinkennin og gott betur.
https://www.mayoclinic.org/diseases-conditions/narcissistic-personality-disorder/symptoms-causes/syc-20366662
Kveðja Jón Árni
Jón Árni Bragason, 19.8.2020 kl. 15:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.