Laugardagur, 23. maí 2020
Rauði krossinn og verkefnalisti vinstrimanna
Áherslumál Rauða krossins eru samkvæmt meðfylgjandi frétt: ,,loftslagsbreytingar, krísur og hamfarir, aðgengi að heilbrigðisþjónustu, fólksflutningar og valdaójafnvægi."
Vinstrimenn búa til krísur, t.d. hugmyndina um manngert veðurfar, til að dygðaskreyta sig og krefjast almannafjár handa sérfræðingum að fást við ímynduð vandamál. Þá stundar Rauði krossinn að flytja inn til landsins útlendinga til að sérfræðingar geti rukkað ríkið fyrir þjónustu við þá.
Við hæfi er að þekktur vinstrimaður verði varaformaður félagsskapar sem einu sinni var til að hjálpa sjúkum og særðum en ekki ,,sérfræðingum."
Silja Bára kjörin varaformaður Rauða krossins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Fólksfjölgun (í milljónum)
Ár........1950...2020...2030....2040...2050....2060....2070
Afríka....228...1,300....1,700...2,100...2,500...2,900....3,300
Evrópa....549.....748......741.....728......710......689.......667
Næstu 50 árin munu fólki í Evrópu fækka úr 748 niður í 667 milljónir. Evrópubúum mun fækka sem um 81 milljón sem er sami fjöldi og býr í Þýskalandi.
Fjárfestar fá áður virtar stofnanir sem ginningarfífl til að búa til "fallega" tylliástæðu til að fylla í skörðin í Evrópu. Lyginn er sú að hamfarahlýnun muni hrekja íbúa Afríku á flótta en samkvæmt spám mun þeim fjölga um 2 milljarða næstu 50 árinn.
Benedikt Halldórsson, 24.5.2020 kl. 08:47
https://www.pewresearch.org/fact-tank/2019/06/17/worlds-population-is-projected-to-nearly-stop-growing-by-the-end-of-the-century/
Benedikt Halldórsson, 24.5.2020 kl. 08:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.