Föstudagur, 1. maí 2020
Hvað gerir VR fyrir launafólk?
Opnar VR digra sjóði sína fyrir sveltandi og umkomulausum á degi verkalýðs? Ræðst VR í að stofna fyrirtæki til að veita atvinnulausum starf? Lækkar VR félagsgjöld sem launþegar eru neyddir til að greiða?
Nei og aftur nei. VR gerir ekkert slíkt fyrir launafólk.
Aftur vill VR að launafólk geri byltingu.
Fyrir VR.
Hótar annarri búsáhaldabyltingu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það væri tilvalið að VR felldi niður félagsjöld þar til ástandið lagast. Félagsmenn ættu að hefja undirskriftasöfnun til að krefjast þess.
Þorsteinn Siglaugsson, 1.5.2020 kl. 13:37
Sammála Þorsteini í þetta skipti.
Benedikt Halldórsson, 1.5.2020 kl. 14:45
Komminn í brúnni vill bara völdin til sín. Það er kallað stjórnlyndi og Stalin var áskrifandi að þslíkum kröfum.
Halldór Jónsson, 1.5.2020 kl. 15:13
Virðing Réttlæti! Er mig að misminna að efnt hafi verið til samkeppni um nafn á þetta virðulega stéttafélag,eða er þetta slagorð þess?
Helga Kristjánsdóttir, 1.5.2020 kl. 16:23
Orðin voru valin af því að skammstöfunin var VR. Dæmigert svona innihaldslaust vörumerkjabrölt.
Þorsteinn Siglaugsson, 1.5.2020 kl. 19:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.