Fimmtudagur, 13. febrúar 2020
Tilfinningapólitík og veruleikinn
Sósíalísk tilfinningapólitík um að fólk í fullri vinnu lepji dauðann úr skel vegna láglaunataxta er teflt gegn þeim veruleika að hér voru lífskjarasamningar samþykktir, m.a. af Eflingu.
Tilfinningapólitík sósíalista er lýðskrum frá a til ö.
Þeir dagar eru liðnir að verkalýðshreyfingin komist upp með að gera verðbólgusamninga. Samdráttur í hagkerfinu, endalok góðærisins, mun auka atvinnuleysi. Sósíalistar eru búnir að þurrausa tilfinningaskjóðuna í þágu fólks á fullum launum og eiga ekkert eftir handa þeim sem höllum fæti standa, eru atvinnulausir.
Snúið þegar menn hreyfa sig ekki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.