Þriðjudagur, 21. janúar 2020
Óþarfi að hækka laun opinberra starfsmanna
Ríkið og stéttafélög opinberra starfsmanna eru sammála um að óþarfi sé að hækka launin. Engin yfirlýsing er gefin út um málið. Látið er nægja að semja ekki.
Lífskjarasamningar á almennum vinnumarkaði eru augljós fyrirmynd fyrir opinbera starfsmenn en einir 40 fundir hafa ekki leitt það í ljós.
Á meðan svífur það viðhorf yfir vötnum að laun opinberra starfsmanna þurfa ekki að hækka til samræmis við launahækkanir á almennum markaði.
SA riðu á vaðið með skammtímasamninga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Mín tilfinning er að opinberir starfsmenn ætli sér ekki að láta sér samninga sem taka mið af lífskjarasamningunum duga sér. Þar stendur hnífurinn í kúnni.
Stefán Örn Valdimarsson, 21.1.2020 kl. 10:00
Rétt hjá Stefáni.
Steinarr Kr. , 21.1.2020 kl. 16:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.