Fimmtudagur, 26. desember 2019
Bretland: hagvöxtur eftir Brexit
Hagvöxtur tekur kipp eftir að Bretar semja um úrsögn úr Evrópusambandinu, Brexit, segir í efnahagsspá í Telegraph. Stórsigur Íhaldsflokksins í þingkosningum í desember ryður brautina fyrir úrsögn sem breska þjóðin samþykkti í þjóðaratkvæðagreiðslu fyrir rúmum þrem árum.
Það þurfti tvennar þingkosningar í Bretlandi til að knýja í gegn þjóðarvilja. ESB nýtti sér veikleika vestræns lýðræðis til að ala á sundurþykkju í breskum stjórnmálum. Lærdómurinn sem Evrópuþjóðir, Íslendingar meðtaldir, draga af Brexit-ferlinu er að ESB er stórhættulegt lýðræðinu og samheldni þjóða.
Brexit eflir andstöðuna gegn aðild Íslands að EES-samningnum sem ESB notar á óskammfeilinn hátt til sækja sér auknar valdheimildir, nú síðast með orkupakka 3.
Gangi hagvaxtarspáin eftir fyrir Bretland verður það enn ein staðfestingin á að fullvalda þjóð vegnar betur utan ESB en innan ríkjasambandsins.
Athugasemdir
Ja hérna, og eftir allar svartsýnisspárnar.
Ragnhildur Kolka, 26.12.2019 kl. 12:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.