Trúarathöfn glópa, þjóðkirkjuprestur blessar rafmagn

Trúarathöfn var haldin út á Granda með þjóðkirkjuprest í fullum herklæðum.

Söfnuðurinn trúir á manngert veður og krefst lækkunar á hitastigi jarðar. Í frostinu út á Granda var olíu formælt en rafmagn blessað. Guð almáttugur kemur hvergi við sögu.

Trúin á mátt mannsins eykst í réttu hlutfalli við ofstækið.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þessi særingamaður Davíð Þór Jónsson hefur aldrei verið trúverðugur sem prestur.

Sbr. þessa ádrepu, þar sem villukenning hans kemur við sögu: 

Hefur biskup Þjóðkirkjunnar gefið trúna á fæðingu Jesú í Betlehem upp á bátinn?

Jón Valur Jensson, 6.12.2019 kl. 15:52

2 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Mann setur hljóðan.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 6.12.2019 kl. 17:38

3 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Í gær hefðu þegnar á plani hlegið að gríninu út á Granda. Í dag er Davíð Þór prestur sem leggur ekki skipanir alþjóðlegrar elítu í hégóma - í ritningu hennar er það glæpur gegn mannkyni að efast.

Miðað við umsnúninginn frá gríni yfir í glæp - má alveg eins búast við að villutrúarfólk verði handtekið á morgun. 

Benedikt Halldórsson, 6.12.2019 kl. 17:51

4 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Spádómar segja eru að allt fari á kaf vegna olíusynda mannsins.

En sjávarborð hækkar aðeins um tvo millimetra á ári (2,1mm), tikk, takk, eins og klukka sem flýtir sér ekki einu sinni vegna olíunnar og því mun Sódóma og Gómorra því miður ekki fara á kaf í tæka tíð fyrir næstu ísöld. 

Obama aðalpredikarinn, á nú heima flottu húsi með aldingarð, við fallega sólríka strönd, sannkallaða paradís, sem á samkvæmt hamfaraspádómum að fara á kaf bráðlega. Obama veit betur, öfugt við Davíð Þór sem er svo trúaður í kuldaúlpu út á Granda í frosti og kulda. 

 

Benedikt Halldórsson, 6.12.2019 kl. 18:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband