Miðvikudagur, 4. desember 2019
Múslímar og Pólverjar á Íslandi
Langstærsti minnihlutahópurinn á Íslandi er Pólverjar. Ekki verður annað séð en að þeir geri sér far um að falla að siðum og háttum okkar sem byggjum þetta land.
Múslímar, á hinn bóginn, nálgast gestrisni Íslendinga á annan hátt. Þeir reisa trúartákn við fjölfarna samgönguæð. Í frétt um framkvæmdina kemur eftirfarandi fram:
Múslimar á Íslandi lifa í sátt og samlyndi við aðra, segir Askari, sem segir að mínarettan hafi fyrst og fremst það hlutverk að auka sýnileika moskunnar.
,,Sýnileiki" eins skyggir á annan. Það er ekki merki um ,,sátt og samlyndi" að ota framandi trúartáknum framan í Jón og Gunnu. Múslímar ættu fremur að temja sér pólska háttvísi.
Voldugur bænaturn reistur í Hlíðunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sjálfur hafna ég öllum múslima-moskum á ÍSLANDI
og vil að það sé farið eftir þeirri stjórnarskrá sem að er í gildi;
sem að kveður á að það SKULI VERNDA KRISTNA TRÚ.
62. gr.
Hin evangeliska lúterska kirkja skal vera þjóðkirkja á Íslandi, og skal ríkisvaldið að því leyti styðja hana og vernda.
Eru engir flokkar á alþingi sem að hafa kjark
til að fara eftir stjórnarskránni
og sporna gegn múslima-moskum á okkar KRISTNU FÓSTURJÖRÐ?
Jón Þórhallsson, 4.12.2019 kl. 08:01
Ætli staðsetning turnsins tengist ekki frekar því að bænahús þeirra er þarna við hliðina, frekar en umferðinni sem fer um Öskjuhlíð.
En hvað er það annars sem þér finnst þessi turn skyggja á?
Skeggi Skaftason, 4.12.2019 kl. 09:13
Hvar eru nú HINIR 9 ÚTVÖLDU RIDDARAR HRINGBORÐSINS
var þeim ekki ætlað að standa vörð um KRISTIN GILDI?
https://www.youtube.com/watch?v=D9qcRVU_OsU
Eða eru allir frímúrarar landsins eru farnir að leika trúða
i gaypride-göngum og mylja undir samkynhneigð sjónarmið?
Jón Þórhallsson, 4.12.2019 kl. 09:24
Bloggarinn Erla Magna telur að við Íslendingar verðum komin í minnihluta eftir ekki svo mörg ár með óbreyttri stefnu. Skoðið bloggið hennar.
Sigurður I B Guðmundsson, 4.12.2019 kl. 11:07
Kjánalega mælt að vanda. Pólverjar eru kaþólskir og hér vill svo til að eru kaþólskar kirkjur. Væru þær ekki til staðar myndu Pólverjar vitanlega gera nákvæmlega það sama og múhameðstrúarmennirniar; reisa hana.
Þorsteinn Siglaugsson, 4.12.2019 kl. 11:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.