Fimmtudagur, 28. nóvember 2019
Formaður Viðreisnar: bæjarútgerðir, já takk
Þorgerður Katrín formaður Viðreisnar er þá sósíalisti inn við beinið. Hún vill nota stjórnarskrá lýðveldisins til að koma málum svo fyrir að eingöngu opinberar útgerðir dragi fisk á Íslandsmiðum.
Í orði kveðnu þykist Viðreisn frjálslyndur hægriflokkur. Tillögur flokksins ganga þó oftar en ekki út á aukin ríkisafskipti.
Viðreisn sósíalískra bæjarútgerða toppar þó flest annað frá flokki ESB-sinna.
![]() |
Tryggja varanlegt eignarhald þjóðarinnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Samkvæmt orðanna hljóðan hjá Þorgerði talar hún hvergi gegn því að útgerðarfyrirtæki fái aðgang að auðlindinni gegn "sanngjörnu gjaldi", heldur mælir hún gegn því að fyrirtækin fái þennan aðgang sjálfkrafa til eilífðar.
Ómar Ragnarsson, 28.11.2019 kl. 14:06
Nafni minn, hví bullar þú svona.
Frá því að kvótinn var settur á fyrir um fjórum áratugum síðan, þá hefur hann gengið kaupum og sölum, það er vandfundin sú útgerð sem aðeins gerir út á upphaflega kvótaúthlutun.
Markaðsverð kvóta hefur mótast af braskarasjónarmiðum, réttmæti fjárfestingarinnar ráðist af endursöluverði, en ekki af meintum framtíðartekjum.
Þess vegna var kerfið sem slíkt gjaldþrota þegar fjármálakerfið okkar hrundi haustið 2008, eigið fé neikvætt um 80 milljarða.
Tugir eða ekki hundruð milljarða höfðu leitað út úr kerfinu í vasa þeirra sem seldu frá sér kvótann.
Þeir fjármunir voru ekki skattlagðir sérstaklega, og enginn var auðlindaskatturinn þá. En núna tekur þú undir það bull að þeir sem þraukuðu í greininni, fái kvóta sinn endurgjaldslaust, sem er fjarri sanni, á einhvern hátt hafa þau fyrirtæki sem hafa þraukað, í stað þess að selja frá sér kvótann, greitt margfalt auðlindagjald til þeirra sem seldu.
Markaðurinn hefur ráðið því gjaldi, en ef fólki finnst það ósanngjarnt, að um einhverja umframrentu sé að ræða, þá leggur það til aukaskattlagningu á þá rentu, en leggur ekki til tvísköttun á þá sem ennþá reka fyrirtæki í greininni fyrir eigin reikning.
Slíkt er ekki einu sinni kommúnismi, það er einfaldlega bara heimskt.
Það má vera að til hafi verið bændur sem skáru undan sér bústofninn til að lifa gósenlífi yfir veturinn, en það fara bara engar sögur af því, því þeir og þeirra kyn dó út.
Sökum heimsku, það kom nefnilega aftur vetur.
Það vita allir búandamenn en mikið má úrkynjun velmegunar vera ef öldungar taka undir þá forheimsku að blóðmjólka björgina áður en hún skilar lífsafkomu og arði.
Svei attan nafni.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 28.11.2019 kl. 14:46
Alltaf jafn gaman að því að Páll Vilhjálmsson skuli titla sig blaðamann hér á blogginu. Því megnið af skrifunum snýst um að ljúga bara upp einhverju bulli. Kannski skiljanlegt að hann skuli ekki vera blaðamaður á neinu blaði.
Þorsteinn Siglaugsson, 28.11.2019 kl. 17:19
Æ, ó, aumingja ég.
Það vottar fyrir biturð í þessari athugasemd þinni Þorsteinn.
Líkt og þú efist um þitt eigið ágæti.
Það batnar samt ekkert við það að ráðast á kónginn, hans sess er verðskuldaður.
Og ef þú ert sanngjarn, þá njótum við minni spámennirnir góðs af styrk Páls.
Sem varð ekki til á einni nóttu, en eftir á hyggja mátti ljóst verða á haustmánuðum 2008.
Hvort sem menn eru sammála eða ekki, þá ættu menn að þakka að til er maður sem tjáir sig á eigin forsendum, og hefur haldið haus allan þennan tíma í þágu málstaðar sem má kenna við sjálfstæði og reisn þjóðar okkar.
Segir sá sem þjáist ekki að því að vera alltaf sammála Páli, en þakkar fyrir skrif sem hægt er að máta við skoðanir og lífsviðhorf.
Það er kjarni þess að innlegg þitt er rangt Þorsteinn, og við vitum það báðir, að þú veist það alveg eins og ég.
Það er bara svo.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 28.11.2019 kl. 20:19
Þú skilur greinilega ekki muninn á því að kalla eftir að þjóðin njóti góðs af auðlindum sínum og að krefjast þess að nýting þeirra sé ríkisrekin Ómar Geirsson. Ég ætla Páli Vilhjálmssyni ekki að vera svo vitlaus að skilja ekki þennan mun, hann er hins vegar nægilega skeytingarlaus um sannleikann til að staðhæfa að hann sé ekki til staðar. Og það virkar greinilega á hina, sem eru kannski ekki jafn skeytingarlausir um sannleikann, en eiga þeim mun erfiðara með annað ...
Þorsteinn Siglaugsson, 28.11.2019 kl. 22:34
Æ, ó aftur aumingja ég.
Sjónarmið í sjálfu sér Þorsteinn, þó það þurfi vissa blindu til að slá því fram að þjóðin njóti ekki arðs af sjávarauðlindinni í dag, sjávarútvegurinn ásamt sjávarklasanum er líklegast helsta gullkista þjóðarinnar í dag, þó ferðamannaiðnaðurinn skili meira brúttó í kassann sökum fjölda ferðamanna, en seint verður hann talinn arðbær iðnaður sem borgar vel.
Látum það samt kjurt liggja, þekki ekki til ástandsins á sjóntaug þinni eða hvort þú notir gleraugu, sólgleraugu eða annað sem útskýrir þessa fullyrðingu þína.
En í alvöru talað Þorsteinn, þessi orð þín hér að ofan, til mín, eru eins og þau eru, en samt þráður út frá tilefninu. En jafnvel Ray Charles sæi ekki neina glóru í orðum þínum, sem áttu að vera andsvar við pistil Páls.
"Alltaf jafn gaman að því að Páll Vilhjálmsson skuli titla sig blaðamann hér á blogginu. Því megnið af skrifunum snýst um að ljúga bara upp einhverju bulli. Kannski skiljanlegt að hann skuli ekki vera blaðamaður á neinu blaði.".
Þó átti Ray alvöru sólgleraugu.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 28.11.2019 kl. 23:21
Þetta er, í alvöru talað, eins og að reyna að eiga samtal við eitthvert dýr.
Þorsteinn Siglaugsson, 29.11.2019 kl. 00:13
MJá, mjá.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 29.11.2019 kl. 07:11
Nú skil ég ekki alveg Þorsteinn. Kannski er ég líka dýr en það er spurning hvers konar dýr það er t.d. munur á lindýri og hundi. Ertu að segja að samfélagið njóti einskins af auðlyndum sínum nema í gegnum skattlagningu til ríkisins?
Stefán Örn Valdimarsson, 29.11.2019 kl. 08:55
Ég held að Páll sé faglærður blaðamaður sem fáir aðrir eru
Halldór Jónsson, 29.11.2019 kl. 09:00
Þorgerður er Evrópusósíalisti eftir því sem mér hefur sýnst. Hún var alltaf álitin krati í grunninn meðan hún var í Sjálfstæðisflokknum sem ég best vissi en ekki hægri sinnuð.
Halldór Jónsson, 29.11.2019 kl. 09:02
Ég er að segja, Stefán, að það að kalla eftir að greitt sé markaðsverð fyrir kvóta er ekki það sama og að kalla eftir að ríkið reki sjávarútveginn. Er þetta eitthvað flókið?
Þorsteinn Siglaugsson, 29.11.2019 kl. 11:15
Ef markmiðið er að kvótinn færist á enn færri hendur þá uppboðsleiðin fín. Ég ætla ekki að ræða hversu æðislegt það verður fyrir sjávarútvegsfyrirtæki að gera framtíðaráætlanir t.d. fjárfestingaáætlanir í slíku kerfi.
Stefán Örn Valdimarsson, 29.11.2019 kl. 11:45
Ég bendi aðeins á að þetta tvennt er ekki sami hluturinn, en síðuhafi fullyrðir það. That's all!
Þorsteinn Siglaugsson, 29.11.2019 kl. 12:44
Nei Þorsteinn, þú kallaðir hann efnislega lygara og að hann lygi því meira að segja til að hann væri blaðamaður.
Þó ég skipti mér yfirleitt ekki af athugasemdarkerfi annarra, þá er ekki hægt að láta þig komast upp með slíkan málflutning, og þess vegna böggaði ég þig.
Það var þá sem þú reyndir að koma með efnislega athugasemd.
Varðandi pistil Páls þá er þetta ironía, dregur fram hvað felst í þessum sósíalisma andskotans að skattleggja allt til andskotans.
Og það er í þeim þjóðfélögum sem atvinnugreinar og auðlindir skila litlu til samfélagsins.
það er gróskan og þrótturinn sem skilar arðinum, ekki ofurskattar.
Og já, Mjá mjá.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 30.11.2019 kl. 06:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.