Miðvikudagur, 27. nóvember 2019
RÚV týnir 4 ára spillingarrannsókn í Namibíu - viljandi
Í gær segir RÚV að múturannsókn á Samherja í Namibíu hafi staðið yfir ,,í rúmt ár" eða frá árinu 2018. Fyrir tveim vikum birti RÚV frétt með þessari fyrirsögn: ,,Mútumálið hefur verið til rannsóknar frá 2014".
Þarna á milli eru 4 ár. Í upphafi atlögunnar að Samherja fyrir tveim vikum þótti henta að namibísk stjórnvöld hefðu verið með Samherja til rannsóknar í fimm ár, frá 2014. Það þurfti að búa til þá ímynd að hér væri alvörumál á ferðinni en ekki fréttahönnun á Efstaleiti.
Tveim vikum síðar þykir hagfelldara að namibíska rannsóknin sé á frumstigi. RÚV er komið í kjörstöðu þar sem fólk keypti upphaflega tilbúninginn. Næsta stig er að sækja að þeim sem eru viðkvæmari fyrir árásum en forsvarsmenn Samherja. RÚV ætlar að liggja utan í embættismönnum og ráðherrum á Íslandi og spyrja kvölds og morgna: draga íslensk yfirvöld lappirnar við að hjálpa Namibíumönnum að afhjúpa Samherjaspillinguna? Kveiksþátturinn í gærkvöldi lagði grunninn. Myndefnið var sveltandi börn í Afríku. Skilaboðin þau að Bjarni, Katrín og Kristján beri ábyrgð.
RÚV veit sem er að þegar tekst að gera íslenska ráðherra og embættismenn að skotmarki er sigur í sjónmáli. Þeir ekki tala við RÚV, af því þeir vilja ekki svara röngum ásökunum, fá reglulega frétt um sig að neita að svara skilaboðum fréttamanna. Þannig eru ráðamenn sýndir á flótta frá handhafa almenningsálitsins, sem auðvitað er sjálft RÚV. Á Efstaleiti kunna menn fréttaeinelti - stundum kallað ,,að taka menn niður."
RÚV er komið á gamalkunnugt stig í ásakanablaðamennsku. Staðreyndir eru búnar til eftir því sem ,,umræðan" krefst á hverjum tíma og fréttamenn hundelta sérvalin fórnarlömb.
Ein tegund spillingar er falskar ásakanir. Spilling af þessu tagi er því verri sem ásetningurinn er staðfastari.
Brotavilji RÚV er einbeittur. Valdið er á Efstaleiti og þar sæta menn aldei ábyrgð.
Segja fullyrðingar Helga gróf ósannindi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Helgi virðist vera með Samherja á heilanum.
Ragnhildur Kolka, 27.11.2019 kl. 10:12
Öfgafólk sem sér ekki lengur til sólar og á sennilega ekki afturkvæmt til jarðarinnar, lifir í ímyndaðri furðuveröld, en fær orku og ofurstyrk hjá öfgasystursamtökum sem eru óteljandi en hafa öll nákvæmlega sömu markmið.
Trúin. Hamfarahlýnun veður yfir landamæri, og þess vegna þarf að koma á glópalstjórn vitringa með ofurvöld. Hamfarahlýnun er Sódóma og Gómorra nútímans sem kannski er hægt að afstýra ef fólk játar syndir sínar og treystir sósíalískum "æðri mætti" til að leiða mannkynið. Tíminn er naumur, ekki efast, ekki fara í afneitun. Það er glæpur gegn mannkyninu.
Það þarf því að leggja niður kapítalisma, landamæri heimsins og þing einstakra ríkja sem tefja bara fyrir ofurfólkinu - tíminn er naumur, ekki tefja fyrir, ekki efast. Að sjálfsögðu þarf að leggja niður landhelgi einstakra ríkja - til að vernda fiskana og sjávarlífið sem ofurfólkið elskar.
DV 2012.
Skýrslan er unnin af samtökunum Environmental Justice Foundation (EJF) og fór fram úti fyrir Síerra Leóne. DV hefur fjallað um fiskveiðar íslenskra skipa úti fyrir ströndum Vestur-Afríku síðastliðna mánuði.
Stofnandi EJD. Steve Trent We have created another era of mass extinction, burning the “library of life”.
Grapevine 2014.
Greenpeace Criticises Icelandic Fishing Company A new report from Greenpeace, “Monster Boats”, casts a spotlight on vessels from around the world which practice unsustainable or illegal fishing, often hiding their ownership behind numerous shell companies. Two ships from Iceland – the Norma Mary and Saga GDY-150 – are reportedly owned by the same company, Samherji.
Greenpeace.
Our organisations seek a world where people thrive in a safe and healthy environment, where human rights come before corporate profits. To make it happen, we need to face the climate crisis united in the strongest and most diverse movement ever assembled. Only together can we make world leaders take this emergency seriously.
EJF believes
climate change is both an environmental and human rights issue, and our Climate Campaign aims to secure international protection for the world’s growing population of climate refugees. Climate change is an existential threat to humanity. As global temperatures continue to hit levels not seen since records begun, extreme weather events continue to cause major disruption and the rising cost of inaction leaves the poorest and most vulnerable people on our planet worst affected... Climate change is no longer a future threat. It is happening here and now, and communities across the world - from the Pacific Islands to Alaska - are already fleeing in the wake of the mass destruction and greater social, economic and political instability it brings.
Benedikt Halldórsson, 27.11.2019 kl. 13:32
Svokallað "vísindasamfélag" byggir á stigveldi. Það virkar oftast vel.
Háttsettir vísindamenn taka aðeins mark "jafningjum" sínum sem eru nokkuð samstíga um hlýnun jarðar af mannavöldum. Hinir sem eru ósammála færast neðar í metorðastigann. Það er ekki tekið mark á lágsettum.
Það er erfitt að fá stjórnmálamenn til að borga brúsann ef mennirnir á "efstu hæðinni" eru of tvístigandi og svara "tja, þegar stórt er spurt verður fátt...." en orð eins og líklega verður að fullvissu hjá pólitíkusum, fjölmiðlum og almenningi. Eitthvað krassandi vekur athygli.
Aktívistar, sósíalistar og allskonar lið sameinast undir merkjum hamfarahlýnunar sem gefur miklu betur en áskrifendur sem fækkar stöðugt. Allir voru hættir að taka mark á sósíalistum og græningjum.
Fólk vill ekki borga lengur fyrir fréttir en hverskonar hamfarir, arðrán í Afríku heldur athygli þeirra i smátíma.
Benedikt Halldórsson, 27.11.2019 kl. 15:02
The Mark Steyn Show
Arctic Ice Refuses To Melt As Ordered
Prof. Tim Ball provides a comprehensive overview of the eugenic origins of CO2 alarmism
Benedikt Halldórsson, 27.11.2019 kl. 15:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.