Sunnudagur, 24. nóvember 2019
Namibía skilur ekki RÚV-Ísland
Stjórnvöld í Namibíu standa í þeirri trú að þar sem RÚV er opinber stofnun hljóti fréttastofan að framfylgja stefnu stjórnvalda. Ákæra, réttarhöld og dómur RÚV um spillingu sé afgreiðsla íslenska ríkisins á Samherja-Namibíumálinu.
Við sem heima sitjum vitum að RÚV er sjálfala ríkisfyrirtæki sem stjórnað er af dómgreindarlausum frekjuhundum á vinstri kanti stjórnmálanna. Í skjóli fjölmiðlavalds takur Efstaleiti mann og annan af lífi með einhliða fréttaflutningi byggðum á ótraustum heimildum, slúðri og sviðsettum atburðum.
Namibíumönnum er nokkur vorkunn. Hér heima fatta ekki allir rúvíska réttvísi. Þannig töldu Samherjamenn sig standa með pálmann í höndunum í deilu við Seðlabanka Íslands og ætluðu sér að koma fyrrum seðlabankatjóra í fangelsi fyrir að hafa vogað sér að rannsaka gjaldeyrisskil útgerðarinnar.
En þá greip RÚV í taumana, enda í samvinnu við Seðlabankann, og samdi handrit, Kveik-þáttinn alræmda, og sviðsetti mútugreiðslur Samherja í Namibíu (þið munið, rauð íþróttataska plús Helgi og Aðalsteinn).
Ákæra og réttarhöld RÚV leiddu til handtöku íslensks skipstjóra í Namibíu, kyrrsetnignar á togara og nú virðist að forstjóri Samherja skuli framseldur til namibískra lögregluyfirvalda.
Ríkisstjórn Ísland þorir hvorki að hreyfa legg né lið af ótta við að Efstaleiti skipuleggi mótmálaöldu sem hreki Kötustjórnina frá völdum.
Þannig er RÚV-Ísland.
Íslendingar ættu að rannsaka spillingu heima fyrir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Starfsmaður Global Witness samtakanna sem vitnaði gegn Samherja er í vinnu hjá George Soros sem hefur engin áhrif að sögn vitnisins, þess sama sem taldi að Samherji þyrfti að sanna sakleysi sitt. Að sjálfsögðu þarf hann sjálfur ekki að afsanna illan grun, bara Samherji.
Er eineggja hatur Global Witness og Sorosar, á Donald Trump bara tilviljun?
Global Witness er eitt af ótal ótal félögum sem George Soros stofnaði og/eða styrkir m.a. í Afríku.
Er það tilviljun að félögin sem Soros umbunar eða á, gagnrýna ekki "afskiptasemi" hans viða um heim sem eru umdeild eins og önnur mannanna verk? Þess vegna var lýðræðið fundið upp og tekinn var upp sá siður að hver maður skuli vera saklaus þar til sekt hans hefur verið sönnuð af réttum yfirvöldum. Hefur RÚV ekki frétt af því?
Það er nefnilega engin skortur á mönnum með RÚV sannfæringu um sekt manna þar til þeir geta sannað sakleysi sitt, eftir að reksturinn er kominn í þrot.
Peningar bárust til Íslands frá Soros árið 1999
Stærsta einstaka framlagið kemur frá auðkýfingi af ungverskum ættum, George Soros að nafni...
Konurnar kynntust og náðu að mynda bein sambönd. Hver kona fór heim með bunka af nöfnum og heimilisföngum. Þessi tengsl eru mikilvæg í framhaldinu....
Eitt af því sem konur horfa á sem valdastofnun eru fjölmiðlarnir. Þeir hafa heilmikil áhrif á það hvernig fólk upplifir raunveruleikann...
Nafntogaðasti gestur ráðstefnunnar var án efa frú Hillary Rodham Clinton...
20 árum seinna er RÚV valdastofnun, ríki í ríkinu, sem engin getur haggað og hefur heilmikil áhrif á hvernig fólk upplifir raunveruleikann.
Benedikt Halldórsson, 24.11.2019 kl. 12:58
Er nema von að Namibíumenn botni ekki upp né niður í RÚV, ekkert frekar en venjulegir íslendingar á plani.
Var framið valdarán? Yfirtók vopnuð andspyrnuhreyfing RÚV sem les upp milljarðakröfurnar á kvöldin. Eru þeir með gísla? Sumir telja að nasistar hafi yfirtekið RÚV vegna hatursins á Ísrael. Þeir sendu unga menn til Ísrael sem sungu eins og nasistar, höguðu sér eins og nasistar í búningum sem sem minnti á nasista.
Benedikt Halldórsson, 24.11.2019 kl. 14:49
Ísland er í góðum fjárhagslegum málum. Þótt þessi ríkisstjórn haldi sjó og margt sé vel gert, hefur hún klúðrað stórum málum. Það eru skýjabakkar framundan vegna Orkupakkans, undirskrift utanríkis í Marokkó og hins nýja glóbalisma sem við munum þurfa að lúta í gras fyrir sem þjóð - seinna.
Katrín og Bjarni eru því miður góðir sáttasemjarar. Ríkisstjórnin mun ekki springa.
Við verðum að efna til "illinda" í orðum og í kjörklefanum og í vegna einræðisþróunar í heiminum sem er sennilega með lið á sínum snærum á Íslandi. Landamærin og miðinn opnast ekki af sjálfu sér.
Það er komið mynstur sem bendir til að RÚV í samstarfi við "herinn" séu á bandi þeirra sem telja að mannkynið skuli hafa eina góða sýn í öllum málum.
Elítan telur kannski að einræði sé ekkert til að hafa áhyggjur af. Hún er jú við völd og ímyndar sér að "skynsamt" einræði til vinstri sem 97% vísindamanna hafa skrifað upp á (til að forðast ofsóknir) sé betra en einræði til hægri.
En það eru sömu gráu hlekkirnir sem skána ekkert þótt þeir séu málaðir í regnbogans litum.
Benedikt Halldórsson, 24.11.2019 kl. 17:10
Er mútumálið nú orðið að "sviðsetningu" fréttamanna RÚV?
Mikið áttu bágt.
Þorsteinn Siglaugsson, 24.11.2019 kl. 21:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.