Bankakonur tyfta fátæka karlafjölmiðla

Blaðamennska er viðurkennt láglaunastarf fátækra karla sem vinna langan vinnudag. Flestir fjölmiðlar eru stofnaðir af körlum, konur leggja ekki í áhætturekstur. 

Viðmælendur fjölmiðla eru oftar karlar en konur enda sterkara kynið hlédrægara. Allir sem koma nálægt blaðamennsku vita þetta.

Íslandsbanki hyggst neita viðskiptum við karllæga fjölmiðla.

Útgefendur lífsstílsblaða, prjónablaða og matarútgáfur hljóta að fagna.


mbl.is Kemur Bjarna spánskt fyrir sjónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Kristinsson

Hún er víða að taka yfir FEMINISTAFREKJAN

Óskar Kristinsson, 24.10.2019 kl. 15:23

2 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Svartur 30 október. Hvort kom á undan hænan eða eggið skiptir engu en fyrirtæki sem....get woke go broke.

Benedikt Halldórsson, 24.10.2019 kl. 21:30

3 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Já, gangi þeim vel að ráða strákana inn á prjóna blöðin.

Ragnhildur Kolka, 24.10.2019 kl. 22:42

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Já Óskar og hún rakArarakara. 

Helga Kristjánsdóttir, 25.10.2019 kl. 03:16

5 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Á sumum fjölmiðlum vinna, eðli málsins samkvæmt, fyrst og fremst konur. Það á t.d. við um hannyrðatímarit, tískublöð og fleira. Á öðrum vinna fyrst og fremst karlar. Það á t.d. við um bílablöð, herratískublöð og þess háttar, bara svo eitthvað sé nefnt.

Það er augljóst að starfskrafturinn sem tók þessa ákvörðun hefur litla þekkingu á fjölmiðlum og enn minna vit í kollinum svona almennt talað. En þetta er það sem gerist þegar verið er að ráða fólk í óþörf störf og það tekur upp á því að finna sér eitthvað sniðugt að gera. Þá fer stundum illa.

Þorsteinn Siglaugsson, 25.10.2019 kl. 04:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband