Miðvikudagur, 16. október 2019
XD á milli Samfó og Miðflokks
Sjálfstæðisflokkurinn festir sig í sessi sem stærsti smáflokkurinn, mælist ítrekað undir 20 prósent fylgi eftir orkupakkafíaskóið.
Síðustu tvær kannanir, er sýna Miðflokkinn annars vegar og hins vegar Samfylkinguna, sem næst stærsta flokkinn, leggja línurnar fyrir næstu ríkisstjórnarmyndun.
Sjálfstæðisflokkurinn þarf að velja á milli þess að halla sér í átt borgaralegra stjórnmála Miðflokksins eða sósíalisma Samfylkingar.
Stórir smáflokkar eiga fleiri valkosti en litlir smáflokkar.
Samfylkingin mælist næststærsti flokkurinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
VG er ekki með í næstu ríkisstjórnarmyndun samkvæmt þessari könnun en stutt er í hálfleik.
Helga Kristjánsdóttir, 16.10.2019 kl. 13:49
Það eru bara vondir kostir í boði eins og Íslendingasögunum.
Benedikt Halldórsson, 16.10.2019 kl. 14:04
Skiptir þetta máli? Kjósendur eru virkjaðir og hvattir til þess að mæta á kjörstað, setja krossinn þar sem þeir telja málefnin sem þeir aðhyllast eiga stuðning. Svo fer þetta allt í einn hrærigraut á þingi, kosningaloforð oftar en ekki svikin. Þetta fyrirkomulag svarar varla fyrirhöfninni lengur.
Kolbrún Hilmars, 16.10.2019 kl. 15:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.