Þriðjudagur, 15. október 2019
Pólverjaandúð á Eyjunni
Eyjan segir í fyrirsögn um kosningahegðun Pólverja á Íslandi í nýafstöðnu þingkosningum í heimalandi þeirra:
25% Pólverja á Íslandi kusu öfgahægriflokk sem á rætur í nýnasisma
Efnislega er fyrirsögnin röng. Í fréttinni sjálfri segir að aðeins um 12 prósent Pólverja hér á landi hafi greitt atkvæði.
Texti fréttarinnar gengur út á að gera Pólverja á Íslandi að fasistum. Þar segir m.a.
Á Íslandi kusu næstflestir bandalag öfga hægriflokka, Bandalag um frelsi og sjálfstæði. Hann er samansafn minni flokka sem sumir eiga rætur í nýnasisma...
Það er óviðkunnanlegt, svo ekki sé meira sagt, að skrifa svona um fólk sem býr og starfar hér á landi í sátt við guð og menn.
Eyjan hlýtur að biðjast afsökunar á fréttinni.
Athugasemdir
Alveg er mér sama hvort Eyjan biðst afsökunar eða ekki eða hvað svo sem þar er skrifiað,
Meirihluti Pólverja á Íslandi kaus flokkinn sem tapaði.
Halldór Jónsson, 15.10.2019 kl. 13:45
Magnús Þór Hafsteinsson, fyrrv. fréttaritari Rúv í Noregi, ritstjóri og rithöfundur, átti mjög afgerandi innlegg í símaþátt Péturs Gunnlaugssonar lögfræðings á Útvarpi Sögu nú fyrir hádegið. Hafði honum blöskrað einhliða og óupplýstur fréttaflutningur "RÚV" af pólsku kosningunum, og var því þó kostað til að senda fréttakonu þangað á vettvang, unga konu óþekkta, sem reyndist áberandi hlutdræg og fordómafull.
Þetta var snilldarinnlegg frá Magnúsi Þór og gaf góðar og eðlilegar skýringar á því, af hverju stjórnarflokkurinn Lög og réttlæti vann sinn mikla kosningasigur (fylgisaukning úr 37 í tæp 44%), þ.e.a.s. vegna þess að flokkurinn hefur unnið í þágu alþýðu, með jöfnun launa í landinu og hækkun lámarkslauna, ennfremur með því að koma atvinnuleysi niður í 5% (það þriðja lægsta í ESB) og hagvexti upp í 5% sömuleiðis, og fjarri fer því, að landið sé lokað fyrir útlendingum, því að þar fær fjöldi manna frá Úkraínu o.fl. löndum vinnu í þeim uppgangi sem þar er nú í efnahagslífinu. "Spekileki" eða landflótti vel menntaðra Pólverja í leit að (betri) vinnu hefur líka minnkað umtalsvert.
Það er þetta sem pólskur almenningur horfir á og lætur Lög og réttlæti njóta heiðursins. Aðeins gaddfreðnir Rúvarar og þvílíkir eintrjáningar ímynda sér að þessi ágæta þjóð þrífist á fordómum og útlendingahatri!
Dobry dzen, Pólverjar!
Jón Valur Jensson, 15.10.2019 kl. 14:28
Magnús Þór er núna, á 5. tímanum, í síðdegisviðtali á Útvarpi Sögu, sennilega til kl. 5, og er að ræða Pólland.
Jón Valur Jensson, 15.10.2019 kl. 16:29
Ritstjórnin er auðvitað að vara við að Pólverjar ráðist aftur inn i Þýskaland.
Það er ofbeldi að ásaka fólk um nasisma. Nasistar myrtu 6 milljónir gyðinga með ísköldu blóði.
Benedikt Halldórsson, 15.10.2019 kl. 17:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.