Fimmtudagur, 10. október 2019
Gulli pantar flóttamenn frá Erdogan
Erdogan æðstráðandi í Tyrklandi segist vera með 3,6 milljónir flóttamanna sem hann hótar að senda til Evrópuríkja er gagnrýna innrásina í Sýrland.
Hvað ætli Gulli utanríkis hafi tryggt sér marga flóttamenn?
Tyrkir hætti hernaði í Sýrlandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Áhyggjur Gulla utanríkis.
Gulli hafði áhyggjur af stöðu kvenna er Trump var kosinn.
Gulli hefur afar miklar áhyggjur af innrás Tyrkja í Sýrland.
Gulli lýsir yfir áhyggjum sínum af ákvörðun Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, að draga land sitt út úr kjarnorkusamkomulaginu við Íran.
Gulli lýsti áhyggjum íslenskra stjórnvalda af vaxandi gyðinga- og múslimahatri í Evrópu, sem og gagnvart hinsegin fólki í Tsjetsjeníu og Tansaníu í ræðu á fundi Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í dag.
Gulli koma áhyggjum á framfæri við spænsk stjórnvöld. Verjandi eins ákærðu segir réttarhöldin afbrigðileg.
Hann lýsti áhyggjum sínum af opnun bandaríska sendiráðsins í Jerúsalem á fundi með Jim Mattis, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, í dag....hefur áhyggjur að ákvörðun Trumps muni hafa neikvæð áhrif á friðarviðræðurnar....er hætta á að upp úr sjóði þar sem stöðugleiki á þessu svæði er mjög viðkvæmur.
Í hvaða flokki er Guðlaugur Þór?
Benedikt Halldórsson, 10.10.2019 kl. 16:46
Gulli hefur deilir ekki áhyggjum venjulegs fólks á Íslandi.
Gallinn við hinn úrkynjaða glóbalisma er að of fáir verja hagsmuni eigin þjóðar heldur fer orka alltof margra í að þóknast erlendu og ósýnilegu Valdi.
Gulli mun örugglega bjóða mun fleiri flóttamenn en aðrar "þjóðir" til að skora stig hjá Valdinu.
Það sem bjargar ríkisstjórninni er Katrín og Bjarni. Mér finnst leiðinlegt að viðurkenna það en Katrín er með betri forsætisráðherrum.
Benedikt Halldórsson, 10.10.2019 kl. 18:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.