Sunnudagur, 29. september 2019
Stjórnarskrá er fyrir kynslóðir, ekki smáhópa í leit að pólitík
Stjórnarskrár verða ýmist til fyrir byltingar, sú franska og bandaríska, eða smátt og smátt þróaðar yfir aldir eins og sú óskrifaða enska.
Samfélög stokka upp stjórnarskrár sínar í réttu hlutfalli við pólitíska, efnahagslega og félagslega umsköpun.
Stjórnarskrá er ætlað að standa í kynslóðir, það liggur í eðli málsins þar sem stjórnarskrá er grundvallarlög, og heitir því nafni á norrænum málum. sem öll önnur lög byggja á.
Af þessu leiðir er engin ástæða fyrir Íslendinga að stokka upp sína stjórnarskrá. Hún þjónar okkur vel. Það eru eru hrein og klár skemmdarverk á pólitískum stöðugleika að gera atlögu að stjórnarskrá lýðveldisins.
Fleiri með engan sérstakan áhuga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Snýst um að breyta grein um frasal valds til erlendra stofnana. Allt annað eru gluggaskreytingar og hafa verið frá upphafi. Án þeirrar breytingar getum við ekki flutt fullveldið til ESB. Held að fólk sé löngu farið að sjá gegnum moðreykinn.
Feneyjanefndin hafnaði nýj drögunum vegna of margra fyrirvara á þessari grein. Það segir allt um markmiðið. Þess vegna eru menn enn að hnoðast með þetta.
Jón Steinar Ragnarsson, 29.9.2019 kl. 20:06
Einhver hættulegasta manneskja þjóðarinnar er að vinna að breitingunum,hún sá um að breita útlendingalögunum og vill opin landamæri,sennilega propphænsnið með henni.
Óskar Kristinsson, 29.9.2019 kl. 20:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.