Hlýnun um 2 gráður er gott mál

Tveggja gráðu hækkun á hitastigi yrði gæfa fyrir Ísland en ekki hamfarir. Á miðaldahlýskeiðinu, sem ýmist er talið 900 til 1300 eða 1000 til 1200 var um tveggja gráðu hærri meðalhiti.

Á þessu skeiði fylltist Ísland af norrænu fólki. Við settumst að á Grænlandi og fáeinir reyndu fyrir sér með búsetu í Ameríku.

Að kalla það hamfarahlýnun þótt hitastig jarðar hækki til jafns við það sem tíðkaðist á miðöldum sýnir hve illa gáttaðir margir eru um gang náttúrunnar.

Vísindamenn, sem standa undir nafni, t.d. Roy Spencer, þreytast ekki á að benda á vitleysur glópahlýnunarsinna. En það eru miklir hagsmunir tengdir því að halda bábiljum að fólki. Eins og löngum áður.


mbl.is „Valkvæð túlkun á orðum mínum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Að hugsa sér að þurfa að bua við heilaþvegna glópatrúarríkisstjórn sem líklega sér þarna tækifæri á bak við tjöldin til að herða skattheimtuna á hendur þegnunum.Óli Björn styður þetta er það ekki?

Bjarni Ben hélt því fram á Alþingi að kolefnisgjaldið rynni beint til að greiða niður rafbílana fyrir þá ríku meðan við aumingjarnir borgum hærra eldsneyti á gömlu grammótíkurnar okkar því við höfum ekki efni á að kaupa rafbíla.Þetta er að hugsa um hag þeirra versta settu í kveri Sjálfstæðismanna.

Halldór Jónsson, 13.9.2019 kl. 14:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband