Fimmtudagur, 15. ágúst 2019
Loftslags-Gréta og hatrið á nútímanum
Gréta Thunberg trúir á manngert veðurfar og siglir til Ameríku, líkt og tíðkaðist fyrir daga flugvéla. Trúaðir fá flugviskubit þegar samgöngutæki nútímans eru nýtt.
Hreintrúarstefna Grétu og trúarsystkina hennar hefur sama aðdráttarafl og meinlæti spámanna fyrri tíðar sem héldu í eyðimörkina, settust að í helli og lokuðu sig frá umheiminum. Sjálfspíning vekur aðdáun, kveikir löngun ístöðulítilla að fylgja fordæminu og öðlast hlutdeild í æðri tilveru.
Loftslags-Gréta og söfnuðurinn í kringum hana þrífast á valdsækinni andstyggð sem íklædd er barnslegu brosi með boðskapinn að bjarga þurfi fólki frá sjálfu sér. Valdsækin andstyggð er til muna kröftugri tilfinning en ást og friður.
Söguleg dæmi af trú og stjórnmálum sýna að valdsækin andstyggð tortímir sjálfri sér með öfgum. Eftir sitja þeir ístöðulitlu með skemmda tilveru og sorg í hjarta.
Thunberg lögð af stað yfir hafið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ömurlegt að sjá svona skrif um 16 ára gamala stúlku sem berst fyrir sanfæringu sinni. Hún óvart er með 90% allra vísindamanna að baki málstað sínum ólíkt Miðflokksmönnum og skoðanabræðrum þeirra.
Magnús Helgi Björgvinsson, 15.8.2019 kl. 11:43
Tek undir með Magnúsi.
Baldinn, 15.8.2019 kl. 13:39
90% vúsindamanna fá hvergi vinnu ef þeir efast.
Guðmundur Böðvarsson, 15.8.2019 kl. 13:46
Þeir 90% vísindamanna auk stjórnmálamanna sem trúa á sama málstað og unglingsstúlkan Thunberg ættu að taka hana sér til fyrirmyndar. Næst þegar þetta fólk heldur á ráðstefnur um loftslagsvá af mannavöldum ættu að fara með seglskútu yfir höfin og/eða ganga síðan á ráðstefnustað í stað þess að flykkjast á einkaþotum sínum, þar með talinn Al Gore postuli trúarbragða þeirra.
Tómas Ibsen Halldórsson, 15.8.2019 kl. 13:53
Rangt Guðmundur. Olíuiðanðurinn, stáliðnaðurinn, kjötbransinn og fl. borga einmitt vel fyrir vísindamenn og sérdtaklega ef þeir efast.
Baldinn, 15.8.2019 kl. 14:11
Hvaða barnslega bros? Þessi Þunberg er þungbúnasti krakki sem ég hef séð á lífi.
Ásgrímur Hartmannsson, 15.8.2019 kl. 15:48
90% hvað...?!?!?!? Ekki er allt sem sýnist, lítið á þetta :
.
https://hannesgi.blog.is/blog/hannesgi/#entry-2238886
.
.
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 17.8.2019 kl. 09:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.