Mánudagur, 20. maí 2019
Tvær Katrínur spila á ótta vegna Brexit og Trump
Katrín forsætis og Þorgerður Katrín formaður Viðreisnar eru báðar slegnar ótta vegna gerbreyttrar stöðu alþjóðamála í kjölfar Brexit og Trump-sigurs, hvorutveggja fyrir þrem árum.
Endurmat á stöðu alþjóðakerfa sem byggðust upp eftir seinna stríð stendur yfir. Enginn veit hver niðurstaða endurmatsins verður.
Óskynsamlegt er að mála sig út í horn og ríghalda í fallandi alþjóðahyggju. Nær væri að meta rausætt stöðu mála út frá íslenskum hagsmunum. Og umfram allt að sýna varkárni og tefla ekki fullveldi okkar í tvísýnu með því að framselja það til útlanda.
Sagði stoðir alþjóðlegs samstarfs titra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Er ekki bara málið að loka inni landsöluviðundrin á meðan verið er að koma hlutunum hér í lag.
Fólk hefur verið látið taka pokann sinn af minna tilefni.
Það mætti líkja þessu atferli við það að eg ráði skipshöfn á skipið mitt til að veiða fisk,og þegar þeir kæmu næst í land væru þeir búnir að selja skipið.
Auðvitað ræki eg alla skipshöfnina í land.
Kv Óskar
Óskar Kristinsson, 20.5.2019 kl. 19:12
Alls ekki svo galin samlíking hjá Óskari. Áhöfnin ráðin fyrir "einn túr" og svo selur hún undan sér skipið við fyrsta tækifæri...
Kolbrún Hilmars, 20.5.2019 kl. 22:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.