Mánudagur, 8. apríl 2019
Lög gegn öfgum og hatri - bjánaskapur
Bretar hætta við lagabálk um bann við orðræðu öfga og haturs. Eftir ítarlega athugun komust Bretar að þeirri niðurstöðu að fyrirhuguð lög myndu gera ólöglega pólitíska orðræðu og trúariðkun.
Víðtækt bann á frjálsa orðræðu gengur kannski í Rússlandi en við ættum ekki að fylgja því fordæmi, segir Anderson lávarður sem fór yfir frumvarpið.
Frumvarpið stóðst ekki Clarkson-prófið, segir í umfjöllun Telegraph. Vinsæll sjónvarpsmaður, Jeremy Clarkson, kallaði þáverandi forsætisráðherra Breta, Gordon Brown, ,,eineygðan skoskan bjána."
Brown er bæði skoskur og eineygður. Íslendingar kunna honum litlar þakkir fyrir að beita hryðjuverkalögum á íslenskar fjármálastofnanir í hruninu. En hvorki koma þar við sögu öfgar eða hatur, - en kannski bjánaskapur.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.