Sólveig Anna er að deyja úr hungri, Egilssynir líka

Auðvaldið er alla lifandi að drepa á Íslandi. Sólveig Anna í Eflingu er að deyja úr hungri og auglýsir það með göngu. Lærifaðir hennar, Gunnar Smári sósíalistaforingi, er einnig nær hungurmorða eftir að hafa selt stórhýsi á 125 milljónir króna.

Sigurjón, bróðir Gunnars Smára, spilar golf á hungurlús, kemur frá Spáni í eymdina á Fróni að mótmæla. Í göngunni verður einnig Bára hljóðmaður, ekkert nema skinn og bein; hún fær enga vinnu nema við ólöglegar upptökur og er svöng.

Svengdin eftir sósíalisma er óseðjandi.


mbl.is Kjarabaráttan snýst ekki um staðreyndir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Böðvarsson

En það er alltaf svo gott veður í Venezuela...

Guðmundur Böðvarsson, 23.2.2019 kl. 11:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband