Þriðjudagur, 12. febrúar 2019
Tölur, áróður og skynsemi
Ensk orðskviða segir á þessa leið; til eru lygar, bölvaðar lygar og tölfræði. Innflytjendur á ónýtu kjöti frá útlöndum stunda þann hráskinnaleik að efna til könnunar á matvælaverði á Ísland og gera erlendan samanburð þegar krónan hefur veikst. Þar með fá þeir skotfæri í áróðurstríði gegn landbúnaði.
ESB-grátkórinn grípur til samanburðar á vöxtum á Íslandi og í ónýtu álfunni þegar staðan er þannig i Evrópu að hjól atvinnulífsins snúast ekki nema fá peninga á núll-vöxtum.
Og svo má áfram telja lygarnar klæddar í tölfræði.
Hvað laun áhrærir er þetta að segja: Ísland er jafnlaunaland og jafnframt hálaunaland. Við hertum sultarólina í fjármálakreppunni og söfnuðum launafitu frá og með velferðarstjórn Sigmundar Davíðs. Núna, í yfirstandandi kjarasamningum, gerum við ekki betur en að halda í horfinu. En erum samt þjóð er lifir í vellystingum praktuglega.
Athugasemdir
Innflytjendum er nákvæmlega sama þótt þeir selji útlent kjöt stútfullt af sýklalyfjaónæmum bakteríum,þegar við getum framleitt heilnæmt kjöt og borgað framleiðendum sanngjarnt verð fyrir.
Helga Kristjánsdóttir, 13.2.2019 kl. 01:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.