Sunnudagur, 10. febrúar 2019
Sæland nýjasti sósíalistinn
Þeim fjölgar sem kenna sig við sósíalisma. Logi formaður Samfylkingar talar sósíalískt og núna Inga Sæland sem er Flokkur fólksins.
Framboð af pólitískri orðræðu er takmarkað á íslensku. Gunnar Smári bjó til nokkra orðaleppa sem klæddu öfund og vanmetakennd í sósíalískan búning. Og ístöðulitla fólkið fylgir svarta forystusauðnum.
Aumt, en með ákveðið skemmtanagildi.
Kusu ekki auðkýfinginn Sigmund | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ekki það að öryrkjar hafi ekki rétt til að sitja á Alþingi, en Inga rak þessa frambærilegu menn úr þingflokknum. Þeir voru það sem gaf flokknum vigt og nú situr hún eftir og öskrar.
Ragnhildur Kolka, 11.2.2019 kl. 14:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.