Kissinger: Trump er söguleg persóna

Henry Kissinger er stórvesír á stjórnmálasviðinu, einkum utanríkismála. Hann segir í viðtali við Financial Times að Trump forseti valdi pólitískum vatnaskilum, knýr fram endurmat.

Baunatalning á ,,röngum og villandi fullyrðingum" er ekki mælikvarðinn á stór-sögulegar persónur.

Persónur stór-sögunnar eru einfaldlega hafnar yfir léttvægar staðreyndir. Trump felldi viðtekna heimsmynd síðustu áratuga, kennd við alþjóðahyggju og vinstrafrjálslyndi, og föndrar við að draga upp aðra. Það er verk í vinnslu.

Trump er með þorra stóru atriðanna á hreinu. Það skiptir meira máli en bjöguð staðreynd hér og þar.


mbl.is Trump fer miklu oftar með ósannindi en á fyrsta árinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Það á við Trump eins og marga aðra að maður á að fylgjast með því sem hann gerir ekki því sem hann segir. Ef menn fylgja því einfalda ráði komast þeir nær veruleikanum.

Ragnhildur Kolka, 24.1.2019 kl. 17:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband