Föstudagur, 4. janúar 2019
Nasistar, kommúnistar og sigurvegarar
Sigurvegarar skrifa söguna á kostnað þeirra sigruðu. Kommúnistar í félagi við vestrænar þjóðir, sem kenndu sig við lýðræði, sigruðu nasista í seinna stríði. Grimmd og skepnuskapur nasista var skrifaður upp en óhæfuverkum kommúnista sópað undir teppið.
Veraldlegar trúarsetningar eru forsendan í báðum tilvikum. Nasistar trúðu á þjóð og foringja en kommúnistar á flokkinn og sögulega nauðhyggju. Útkoman var svipuð. Í nafni alræðis réttra hugmynda var milljónum mannslífa fórnað, tugmilljónum í tilfelli kommúnista.
Valdataka alræðisins fór fram undir sömu kringumstæðum. Fyrra stríð sýndi þrot borgaralegs lýðræðis. Alræðið bauð upp á fagra nýja veröld og margir létu blekkjast.
Augljós þreytumerki eru á borgaralegu lýðræði um þessar mundir. Og þá hefst metingur um hvort sé verra, nasismi eða kommúnismi.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.