Mánudagur, 24. desember 2018
Gott fólk og vont
Aðalábyrgðarmaður braggamálsins, Dagur B. borgarstjóri, tilheyrir góða fólkinu og er sem slíkur undanþeginn vondri umræðu, skrifar samflokksmaður Dags og forveri í embætti borgarstjóra, Jón Gnarr.
Góða fólkið er ekki spillt, er vörn Jóns, heldur er kerfið ónýtt.
Sérstaklega misbýður fyrrverandi borgarstjóra að fulltrúi vonda fólksins, Vigdís Hauksdóttir, skuli fá ,,fyrirsögn" á Ríkisútvarpi vinstrimanna. Jón spyr með þjósti: ,,Hver er eiginlega í alvöru að pæla í því hvað henni finnst?"
Góða fólkið gerir ekkert rangt og vonda fólkið á ekki að komast að í fjölmiðlum, er uppskrift Jóns Gnarr að heilbrigðum stjórnmálum. Jón hefur áður gefið yfirlýsingu hvar góða fólkið eigi heima: í Samfylkingunni.
Sakar Jón Gnarr um kvenfyrirlitningu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Merkilegt hvað hugtakið ÁBYRGÐ tekur miklum breytingum eftir við hvern það á.
Ragnhildur Kolka, 24.12.2018 kl. 16:00
Gleðileg jól Páll og þakka þér fyrir ómælda gleði/ögrun sem þú hefur veitt okkur á árinu.ð
Ragnhildur Kolka, 24.12.2018 kl. 16:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.