Mánudagur, 20. ágúst 2018
Norski ráðherrann viðurkennir þrýsting á íslensk stjórnvöld
Utanríkisráðherra Noregs, Ine Marie Eriksen Søreide, viðurkennir berum orðum að þrýsta á Ísland að taka upp orkupakka ESB, sem veitir Evrópusambandinu íhlutunarrétt í raforkumál okkar. Hún segir í viðtali:
Það er mikilvægt fyrir mig að koma því á framfæri að norska Stórþingið hefur samþykkt þessa tilskipun.
Þetta heitir að beita þrýstingi. Íslendingar vissu vel að Norðmenn samþykktu orkupakkann. Algjör óþarfi var fyrir ráðherrann að koma hingað í ,,vinnuferð" nema til að þrýsta á íslensk stjórnvöld.
Norskir stjórnmálamenn, ólíkt þeim íslensku, segja hlutina hreint út: Norsk stjórnvöld beita Íslandi þrýstingi til að Evrópusambandið fái valdheimildir yfir raforkumálum Íslands og Noregs.
Segir meintan þrýsting ýkjur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Gott hjá þér, Páll, að hlífa ráðfrúnni ekki við þessari alvarlegu ábendingu.
Svo hafa fáeinir meðvirkir Íslendingar verið að þræta fyrir þessa staðreynd!
Jón Valur Jensson, 21.8.2018 kl. 06:31
Fróðlegt verður að fylgjast með hvernig atkvæðagreiðsla fer ef frumvarp þess eðlis að fela ESB yfirráð yfir orkumálum okkar verður lagt fram. Þá er gott fyrir okkur öll að taka vel eftir hvernig hver þingmaður greiðir atkvæði. Hverjir koma til með að standa með þjóðarhag og hverjir með hag ESB.
Tómas Ibsen Halldórsson, 21.8.2018 kl. 10:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.