Mánudagur, 28. maí 2018
Ítalir vilja losna við evruna
Ný ríkisstjórn Ítalíu lítur á evruna sem kúgunartæki Þjóðverja og Frakka í Evrópusambandinu. Tillögur nýju stjórnarinnar um hliðargjaldmiðil eru taldar fyrsta skrefið í átt að afnámi evrunnar sem lögeyris á Ítalíu.
Neyðarástand skapast í höfuðborgum Evrópusambandsins í kjölfar frétta frá Róm um atlöguna að evrunni.
Ítalía er eitt af stofnríkjum Evrópusambandsins. Þegar niðurstaða lýðræðislegra kosninga leiða til tillagna um að afturkalla þátttöku Ítala í gjaldmiðlasamstarfinu, sem er hornsteinn sambandsins, er morgunljóst að undirstöður ESB eru feysknar. Svo vægt sé til orða tekið.
Ekki þrælar Þjóðverja eða Frakka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Heyrði ekki betur í morgunfréttum en varnarmúr evrunnar sé risinn; forsetinn hafnar nýjum fjármálaráðherra, bráðabirgðastjórn verði mynduð og kosningar í haust.
Er þetta ekki eitthvað svo ESB?
Ragnhildur Kolka, 28.5.2018 kl. 08:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.