Miðvikudagur, 11. apríl 2018
Nýja kalda stríðið: tilfinningar í stað hugmyndafræði
Nýja kalda stríðið er hættulegt vegna þess að það gæti stigmagnast í bein stríðsátök kjarnorkuveldanna, Bandaríkjanna og Rússlands, skrifar ritstjóri vinstriútgáfunnar The Nation.
Vesturlönd verða að forðast nýtt kalt stríð við Rússland, segir í greiningu íhaldsútgáfunnar The National Interests.
Kalda stríðið, sem háð var 1945-1991, snerist um hugmyndafræði. Sovétríkin og Varsjárbandalagið stóðu grá fyrir járnum í nafni kommúnisma andspænis Bandaríkjunum og Nató sem kenndu sig við vestrænt lýðræði.
Nýja kalda stríðið er án hugmyndafræði. Tilfinningar, ýmist byggðar á samsæriskenningum um rússneskt eiturtilræði í breskum smábæ eða meintri eiturefnaárás á börn í Sýrlandi, stjórna ferðinni.
Tilfinningar eru óútreiknanlegri en hugmyndafræði. Í heimi tilfinninganna þarf færri rök til aðgerða en í veröld hugmyndafræðinnar. Stríðsaðgerðir verða líklegri. Kalt stríð breytist í heitt með stríðsaðgerðum.
Vara Bandaríkjamenn við | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Nú er spurningin þessi: Hvers vegna beita Rússar neitunarvaldi gegn rannsókn á "meintri eiturefnaárás"? Ekket að fela? Og hvað skyldi nú Jón Valur segja um aðfarirnar? Bara sáttur?
Einar Sveinn Hálfdánarson, 11.4.2018 kl. 11:35
Það er akkurat það sem ég var að spá í.
USA , Israel , Saudi Arabien , Frakklandi , UK - ámóti Russland , Iran , Syria. Hvað geri Tyrkland í þessa fall ?
Þetta er ekki sannað að kemisprengju var notað , en er þessa uppreisnarmenn ekki tengd við al qaida ?
Það er gott að vera heima á Íslandi.
Merry, 11.4.2018 kl. 11:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.