Rússar stjórna Ameríku - hversu líklegt?

Rússar stóðu fyrir forsetakjöri Donald Trump eru pólitísku skilaboðin sem demókratar halda á lofti. Nýleg ákæra á hendur 13 Rússum er liður í að gera kenninguna trúverðuga.

En það er ekkert á bakvið ákæru sérstaks saksóknara, eins og Jackson Lears rekur í London Review of Books. Rússarnir munu aldrei koma fyrir rétt, það er ekki einu sinni ljóst hvort þeir verði ásakaðir um lögbrot.

Á meðan malar samsæriskvörnin sem gerir ekki annað en að grafa undan forsetaembættinu og tiltrú Bandaríkjamanna á stjórnkerfinu, segir Stephen F. Cohen.

Kenningin um að vald Rússar yfir bandarískum stjórnmálum sé slíkt að þeir ákveði hver hlýtur forsetaembættið þar í landi þjónar þeim eina tilgangi að demókratar þurfi ekki að takast á við þá niðurstöðu að frambjóðandi þeirra tapaði fyrir Trump.


mbl.is Ásökunum repúblikana hafnað í nýju minnisblaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Spurningin er af hverju er Mueller ekki að rannsaka samráð Alríkisins við Clinton teymið?

Ragnhildur Kolka, 26.2.2018 kl. 09:03

2 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Allt það sem Demókratar ásaka Trump og samstarfsmenn hans um að gera er akkúrat það sem þeir, Demókratarnir, gera og hafa gert.

Það var einmitt Hillary Clinton sem var í leynimakki við Rússa og Obama hvíslaði að Medvedev, þegar enginn átti að heyra en athugaði ekki að míkrófónninn var í gangi, að hann hefði rýmri tíma til að eiga gott samstarf við Rússa eftir kosningarnar 2012.

Það er að verða deginum ljósara að Demókrataflokkurinn er gerspilltur. Þeir brjóta lögin þvers og kruss og hafa komist upp með það.

Tómas Ibsen Halldórsson, 26.2.2018 kl. 10:40

3 Smámynd: Einar Sveinn Hálfdánarson

Sæll

Hvorki Rússar, ESB né heldur aðrar þjóðir eiga nokkuð með að skipta sér að vali valdhafa í öðrum löndum. Frá þessu eru þó réttmætar undantekningar sem ekki eiga við um Evrópuríkin eða Bandaríkin.

Rússar hafa mikil afskipti af stjórnmálum í öðrum löndum, t.d. Lettlandi og Litháen. Engin réttlæting er til á því atferli.

Einar Sveinn Hálfdánarson, 26.2.2018 kl. 10:42

4 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Einar. Það er ekki lengra síðan en í tíð Obama að við síðustu þingkosningar í Ísrael sendi hann fjármuni og sveit sérfræðinga sem áttu að koma í veg fyrir endurkjöri Netanyahus, en það mistókst eins og sagan sannar. Sem sagt Demókrataforsetinn sem hrópar eftir því að aðrir geri það sem rétt er en sjálfur fer sínar eigin leiðir, ólöglegar og illar.

Tómas Ibsen Halldórsson, 26.2.2018 kl. 12:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband