Mánudagur, 12. febrúar 2018
VR skorar ASÍ á hólm - samkeppi í stað samheldni
Verkalýðshreyfingin vann sigra á síðustu öld með samstöðunni. Núna er er það samkeppnin sem gildir; VR skorar ASÍ á hólm þar sem barist er um hvernig afli verkalýðshreyfingarinnar skuli beitt.
ASÍ stendur fyrir hagnýta verkalýðspólitík, vinnur innan þess ramma sem virkar. VR blæs í gamlar hugsjónaglæður um sósíalískt Ísland er lúti pólitískri forystu verkalýðshreyfingarinnar.
Óþarfi er að spyrja að leikslokum. Það hagnýta sigrar ávallt hugsjónir. En stundum er veruleikinn svolítið óljós og þá þarf að takast á um málefni og menn.
Greiða atkvæði um úrsögn úr ASÍ í haust | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.