Sunnudagur, 11. febrúar 2018
Þverpólitísk lögfræðielíta
Þverpólitísk lögfræðielíta ætlar að ákveða skipan dómskerfisins á fundum þar sem ekki eru færðar fundargerðir, nema eftir dúk og disk. Þoku er hulið hvernig elítan kemst að niðurstöðu, hvaða hrossakaup eru á bakvið tjöldin.
Lögfræðielítan hafnar lýðræðislegu aðhaldi kjörinna fulltrúa og fær stuðning í þeirri sérkennilegu kröfugerð frá Pírötum og Samfylkingu.
Eina pólitíska aflið sem stendur gegn sjálftöku sérfræðingaveldisins er þjóðarflokkurinn, sem réttilega kennir sig við sjálfstæði.
Neitar að afhenda gögn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það er týpísk íslensk umræða að ráðast á einstaklinginn en virða vandamálið ekki viðlits. Lögin eru stórgölluð því þau hunsa lýðræðið en hygla sérhagsmunum og það þarf að laga. Umræðan á að snúast um þetta en ekki hver gerir hvað.
Samfylkingin og nú Píratar stunda eineltispólitík með dyggri aðstoð mis virðingarverðra net- og fréttamiðla.
Ragnhildur Kolka, 11.2.2018 kl. 11:34
Í dag:
Trumpvæðing sjálfstæðismanna - Ómar Geirsson
Þorsteinn Briem, 11.2.2018 kl. 14:50
Þannig er þessi pólitík í dag Steini Briem,bara eins og smekkur í tísku eða Eurovisan.- Þegar menn höfðu skipað sér í flokk frá öndverðu var sú ákvörðun skynjun á réttlæti frá upphafi.- "Gjör rétt þol ei órétt"- Er nokkur heitstrenging göfugri ungu lýðveldi sem líður ekki að láta hneppa sig í fangelsi í eigin landi.- Haldi Ómar að Trumpvæðing sé skammaryrði sem Sjálfstæðismenn beri kinnroða fyrir,get ég frætt hann á að samkvæmt minni skynsemi -hefur hann ástríðuna og eldmóðinn og elskuna til ættjarðarinnar,nokkuð sem fólk lýðræðisins þráir.
Helga Kristjánsdóttir, 12.2.2018 kl. 01:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.