Þriðjudagur, 5. desember 2017
Trump og tilbeiðsla hryðjuverka
Trump lofaði kjósendum sínum að loka landamærum Bandaríkjanna fyrir hryðjuverkaógn. Ferðabann ríkisstjórnar hans beindist fyrst og fremst að múslímaríkjum.
Trúarstef helstu hryðjuverkaárása á vesturlöndum síðustu ára er múslímskt. Vesturlönd eru veraldleg og boðberar alþjóðahyggju sem eiga í vandræðum með að umgangast trúarsannfæringu.
Vandræðin birtast til dæmis í sýningu í Berlín þar sem múslímskir hryðjuverkamenn fá heiðurssess við hlið manna eins og Martin Luther King og Sókrates og eru sagðir hafa dáið píslarvættisdauða fyrir sannfæringu sína.
Ferðabann Trumps dæmt lögmætt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.