Fimmtudagur, 26. október 2017
Samfélagsmiðlablaðamennska
Í Hlíðamálinu óð á súðum fjölmiðla orðfæri og tilfinningahiti sem jafnan er kenndur við samfélagsmiðla. Fjölmiðlar tóku þátt í skyndiréttarhöldum þar sem æra manna var troðin í svaðið.
Hlíðamálið er náskylt geðshræringunni vegna hundsins Lúkasar sem þjóðsaga spannst um að væri hart leikinn af nafngreindum manni. En Lúkas sem sagt skrapp á fjall.
Samfélagsblaðamennska fjölmiðla keyrir reglulega um þverbak, samanber Sjanghæ-mál RÚV og dulúð á Efstaleiti.
Er ekki mál að linni?
Fréttamenn dæmdir til að greiða bætur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.