Föstudagur, 13. október 2017
Háskólamenntun kvenna, vanmenntun karla
Nær önnur hver kona á aldrinum 25 til 64 ára er með háskólamenntun, eða 48%. Aðeins rúmur þriðjungur karla (33%) býr að háskólamenntun.
Vanmenntun karla er langtímaþróun sem fær litla athygli. Konur eru fleiri en karlar í nær öllum háskólagreinum, oft er hlutfallið 70-30. Konur eru til muna líklegri en karlar að ljúka framhaldsnámi í háskóla, meistaraprófi eða doktorsnámi.
Menntun veitir aðgang að mannaforráðum og sérfræðistörfum. Ef fram heldur sem horfir stefnir í skekkju á vinnumarkaði.
Ójafnrétti kynjanna er samfélaginu óhollt, sama á hvorn veginn það birtist.
![]() |
40% með háskólapróf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.