Föstudagur, 15. september 2017
Sjanghæ-RÚV: nú verður kosið um barnaníð
Sjanghæ-RÚV býður þjóðinni upp á kosningar um barnaníð þar sem fyrirfram er búið að stimpla stærsta flokk landsins sem hæli barnaníðinga.
Sjanghæ-fréttamennska RÚV snýst um að hirða mannorðið af fólki í beinni útsendingu. RÚV vitnar til nafnlausra heimilda og segir þær nægja til vega mann og annan í beinni. Engin leyndarhyggja þar, allt upp á borðinu eða þannig.
Fyrirsjáanleg kosningabarátta mun slá allt út í pólitískum fáránleika sem þjóðinni hefur verið boðið upp á. Og er þá langt til jafnað.
Bjarni í mjög erfiðri stöðu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hvaða nafnlausu heimildir ertu að tala um? Stúlkuna sem Hjalti braut á og fékk að sjá meðmælabréf Benedikts í gær? Þeir sem vilja gera þolendur þessarra ógeðfelldu brota að einhverjum persónum í þessari atburðarás segja með því allt sem segja þarf um sitt eigið innræti.
Guðmundur Ásgeirsson, 15.9.2017 kl. 14:05
Ég er að tala um Sjanghæ-málið á Akureyri, Guðmundur.
Páll Vilhjálmsson, 15.9.2017 kl. 14:43
Hvað kemur það mál stjórnarslitunum við? Er RÚV eini fjölmiðillinn sem er að fjalla um stjórnarslitin? Hefur verið vísað til einhverra nafnlausra heimilda í þeirri umfjöllun? Hvað ert þú eiginlega að meina?
Guðmundur Ásgeirsson, 15.9.2017 kl. 14:49
Lastu ekki greinina Guðmundur? Þjóðinni var boðið enda greiðir hún það sjálf.
Helga Kristjánsdóttir, 15.9.2017 kl. 15:10
Jú ég las greinina, þrisvar, og hún er ennþá jafn óskiljanleg.
Guðmundur Ásgeirsson, 15.9.2017 kl. 19:07
Þú ert tregur, Guðmundur. Ég skal útskýra hverja efnisgrein.
Fyrsta: RÚV boðar að barnaníð sé kosningamál og að Sjálfstæðisflokkurinn sé sérstakur verndari þeirra. Flettu upp á ruv.is til frekari fróðleiks.
Önnur: vinnubrögð RÚV eru að skjóta fyrst, spyrja svo. Kíktu á hlekkina.
Þriðja: skýrir sig sjálf fyrir þá sem læsir eru.
Ef þú þarft stóra stafi, Guðmundur, er ég viss um að einhver nákominn sjái aumur á þér og kenni þér að stilla tölvuna þannig að hvert orð verði skjáfyllir.
Páll Vilhjálmsson, 15.9.2017 kl. 21:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.