Miðvikudagur, 6. september 2017
Borgaraleg viðhorf á Íslandi
Vinstripólitík í öllum regnboganslitum á greiða leið að íslenskum fjölmiðlum. Borgaraleg sjónarmið eiga það ekki.
Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra og blaðamaður til áratuga, skrifar um vinstrislagsíðu dagblaðs sem einu sinni túlkaði borgaraleg sjónarmið.
vekur undrun hve margir segjast hafa fengið nóg af vinstri slagsíðu á blaðinu og sagt upp áskriftinni [...}JP er ekki lengur borgaralegt blað, það er skoðanalaus prentgripur sem feykist með vindinum. Fyrir 20 árum barðist JP fyrir borgaralegum sjónarmiðum en undan þeirri afstöðu fjaraði. Borgaralegt blað krefst borgaralegra blaðamanna sem skrifa í borgaralegu samhengi. Þetta gerði JP fyrir 20 árum en ekki lengur.
Það var og.
Athugasemdir
Sæll Páll
Prófaðu að setja aðra stafi í stað JP um meintan borgaralegan netmiðil hér á landi. Væri málsgreinin enn sönn?
Einar Sveinn Hálfdánarson, 6.9.2017 kl. 10:21
Sæll Einar Sveinn, ég held að Björn hafi haft í huga aðra skammstöfun þegar hann notaði JP í ofangreindri tilvitnun.
Páll Vilhjálmsson, 6.9.2017 kl. 11:09
Þannig er skipulagið um draum heimsyfirráða aflanna,kaupa upp allar fyrirstöður og breyta þeim.
Helga Kristjánsdóttir, 6.9.2017 kl. 14:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.